Fullyrt er að Thomas Martin Seiz, svissneski auðkýfingurinn sem keypti Hrafnabjörg, fyrrum lúxusvillu Jóhannesar í Bónus í Vaðlaheiðinni gegnt Akureyri, hafi leigt Hollywood leikaranum Tom Cruise hús sitt. Cruise hyggst verja nokkrum vikum á Íslandi í sumar við tökur á kvikmynd og hyggst einnig halda upp á 50 ára afmæli sitt í Vaðlaheiðinni. Samkvæmt heimildum Akureyrar vikublaðs hefur sendiboði undirbúið komu Cruise síðustu daga.
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum í húsinu og er hermt að búið sé að hreinsa allt úr húsinu. Breytingarnar munu gerðar til að Tom Cruise uni sér betur í Vaðlaheiðinni. Von er á þotu bráðlega með húsgögnum og búnaði sem Cruise hyggist nota á meðan á dvöl stendur. „Þetta er að fara að gerast,“ segir einn af heimildarmönnum blaðsins.
Arkitektinn Fanney Hauksdóttir teiknaði Hrafnabjörg. Útsýni frá húsinu þykir stórbrotið og taldist eignin með glæsilegustu húsum landsins þegar það var selt í apríl sl. á um 200 milljónir króna. Því fylgir sundlaug og ýmislegt fleira.


