Síðasti dagur Handverkshátíðarinnar er í dag en aðsóknarmet var slegið sl. föstudag og hafa aldrei jafn margir gestir komið á hátíðina á föstudegi. „Ester Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar var afskaplega glöð í bragði þegar blaðamaður heyrði í henni í dag og sagði mikið af gestum vera komið á svæðið til að njóta síðasta dagsins. „Veðrið leikur við okkur og fólkið situr úti í sólinni og nýtur veitinganna á milli þess sem það skoðar básana.“
Ester segir bera meira á erlendum ferðamönnum nú en áður hefur verið og þeir hafi greinilega fengið fréttir af þessari glæsilegu hátíð. „Við fengum 20.000 heimsóknir í fyrra, sem var algjört met og það stefnir í sama fjölda núna,“ segir Ester.
Í gær voru verðlaun hátíðarinnar veitt og var það Grétar Þór Pálsson sem valinn var Handverksmaður hátíðarinnar 2013. Í umsögn valnefndarinnar segir að handverk Grétars sé fallegt og vel unnið og hafi nefndin heillast sérstaklega af fagurlega útskornum heklunálum.
Hönnunarverðlaun Handverkshátíðarinnar 2013 hlaut Halldóra Eydís Jónsdóttir sem hannar undir merkinu HALLDORA. Í umsögn valnefndarinnar segir að hönnun Halldóru sé heildstæð og falleg, með vísun í þjóðararfinn hvað varðar efnisnotkun og munstur. „Skórnir eru mikið unnir úr íslensku hráefni eins og lambsleðri, roði, hrosshárum og hrafntinnu hraunkristöllum auk hrosshúðar. Með efnisnotkun sinni nær Halldóra að breyta efnistökum íslensku sauðskinnsskónna í alþjóðlega hátískuvöru“.
Sölubás ársins 2013 var valinn bás Einars Gíslasonar sem valnefnd taldi vera sjónrænan, stílhreinan og grípandi bás þar sem söluvaran og innréttingin mynda eina heild.
Heiðursverðlaun Handverkshátíðarinnar 2013 hlaut Heimilisiðnaðarfélagið. Í umsögn valnefndar segir: „Heimilisiðnaðarfélagið hefur unnið mikið og ötult starf við að halda til haga og miðla íslensku handverki„
Síðast en ekki síst þá voru úrslit kynnt úr keppninni um best prýdda póstkassa Eyjafjarðarsveitar 2013 en það var póstkassinn á Hvassafelli sem hlaut þau verðlaun.
Enn gefst tækifæri til að skoða þessa miklu sýningu hönnunar og handverks en sýningunni lýkur kl. 17 í dag.
Hér má sjá myndir af vinningshöfum og stemmningunni um helgina en fleiri myndir má sjá á vef Handverkshátíðarinnar
- Best prýddi póstkassi Eyjafjarðarsveitar 2013 er póstkassinn á Hvassafelli
- Halldóra hlaut hönnunarverðlaun hátíðarinnar
- Góð stemmning á veitingatorginu
- Þjóðháttafélagið Handraðinn
- Heimilisiðnaðarfélagið hlaut heiðursverðlaun hátíðarinnar
- Tískusýning frá Spunadís
- Gestir una sér við að skoða handverkið
- Kjólar frá Helenu kjólaklæðskera
- Tískusýning
- Húsdýrasvæðið
- Kálfasýning
- Mikill fólksfjöldi mætti á hátíðina um helgina
- Börnin fengu að fara á hestbak
- Bílaklúbbur Akureyrar sýnir bíla
- Grétar Þór Pálsson var valinn handverksmaður hátíðarinnar


