Heyrst hefur að nokkur óánægja hafi skapast meðal foreldra og barna sem lögðu leið sín í miðbæ Akureyrar um helgina til að verða vitni að „karamelluregni“. Engin flugvél dreifði karamellunum eins og mörgum hafði skilist á kynningum heldur urðu börnin sem biðu eftir gotteríinu að gera sér að góðu að starfsfólk þeirrar annars ágætu stöðvar, N4, sem sendi út skemmtilega tónleika á fimmtudagskvöldinu, dreifðu karamellum af svölum. Svo illa vildi til að baráttan um brauðið varð mjög ójöfn. Stærri börn voru jafnvel með poka með sér og hömstruðu karamellurnar meðan hin minni fengu ekkert. Örvinglaðastir voru þó foreldrarnir sem reyndu að fórna sér fyrir litlu börnin. Mændu upp í átt að N4 fólkinu og reyndu að reikna út hvar næsta karamella myndi lenda…
Heyrst hefur að Pétur Guðjónsson, talsmaður Einnar með öllu, sá ásamt Þórhalli í Pedró að reyna að ná samningum við Stöð 2 um fréttainnslög frá Akureyri. Miklar breytingar hafa staðið yfir hjá 365 og veit enginn hvert fyrirtækið stefnir. Hitt þykir hæfa nýjum áherslum ágætlega að Pétur er hress og Þórhallur myndatökumaður líka. Stefnan hefur einmitt verið sú hjá einkaframtakinu í fjölmiðlageiranum síðari árin að hressa fjölmiðlana upp – og þá ekki síður fréttahlutann en annað efni. Virðist engin hætta á að Lýðheilsustofnun gefi út tilmæli um að fjölmiðlar verði aðeins jákvæðari eins og tíma rétt eftir hrun. En hvort hressleikinn bætir samfélögin – er önnur spurning. Hefur heyrst að með þessum breytingum öllum dæmi fjölmiðlar sig úr leik í sínu helsta hlutverki. Aðhaldshlutverkinu…
Heyrst hefur að Kristján Ingimarsson og Blam-hópurinn hans hafi fengið fimm stjörnur af fimm mögulegum í breskum dagblöðum undanfarið. Þar er nú leikhópurinn með sýninguna BLAM! að störfum. Virðist engin uppstytta í sigurgöngu Kristjáns og fyllast Akureyringar stolti…



