Trúbadorinn Svavar Knútur heldur nú um helgina tvenna tónleika til styrktar æskulýðsstarfi í Akureyrarkirkju og Laufásprestakalli. Fyrri tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju í kvöld kl. 21.00 og þeir síðari í Grenivíkurkirkju á morgun, 11. ágúst, kl. 20.00
Aðgangseyrir er 2000 kr. og rennur hann óskiptur í unglingastarf kirknanna en einnig verður hægt að kaupa geisladiska með tónlist Svavars.



