Lof fá forráðamenn sundlaugarinnar í Laugum, segir karl sem brá sér í sund í Reykjadalnum. Hann bendir á að lofið fái Reykdælingar fyrir sundgleraugu sem allir sundlaugargestir geti notað. Eflaust sé um að ræða gerlaugu sem hafi gleymst og liggi þau í kassa við sundlaugarbakkann svo allir fái að njóta. Fólk skili svo lánsgleraugunum aftur á sinn stað. Þetta telur maðurinn til fyrirmyndar…
Last fá þeir sem eiga að sjá um að útrýma bjarnarkló sem vex alltaf í brekkunni við gatnamót Spítalavegar og Eyrarlandsvegar, segir kona. „Er ekki sjálfsagt mál að Akureyrarbær fjarlægi þennan vágest sem getur auðveldlega skaðað fólk sem kemst í snertingu við plöntuna, krakkar leika sér allstaðar og oftar en ekki heilla stórar plöntur sem þessar,“ segir konan. Fleiri taka í sama streng og segja plöntuna hreinlega út um allt núna…
Last fá akureyrskir veitingastaðir sem hafa hækkað verð á veitingum sínum um allt að 33% síðan í fyrra, segir karl sem skrifaði blaðinu bréf. Hann nefnir sem dæmi að langloka á einu veitingahúsinu kosti nú kr. 1000 í stað 750 í fyrra…
Last fær Akureyrarbær fyrir að skipta ekki út hoppudýnunni í Sundlaugargarðinum. Þetta segir kona sem sendi blaðinu bréf. „Dýnan er greinilega ónýt, því hún bungar út á stórum parti. Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær það verður slys. Ég allavega leyfði 5 ára syni mínum ekki að fara á þetta,“ skrifar konan…
Lof fá Akureyringar og gestir þeirra fyrir fyrirmyndar framkomu um verslunarmannahelgina. Svo segir hátíðargestur á Einni með öllu sem sendi blaðinu bréf. Hann segir mikinn mun að koma til Akureyrar nú og fyrir nokkrum árum. Hann hafi óttast um líf sitt og limi þá, en í ár hafi gleðin ein ráðið ríkjum. Góð bæjarhátíð að baki…



