Nú styttist í Akureyrarvöku sem er afmælishátíð Akureyrar og haldin er á hverju ári síðustu helgina í ágúst. Þema Akureyrarvöku þetta árið er fjölmenning en fólk af rúmlega sextíu þjóðernum býr á Akureyri. Undirbúningur er nú í fullum gangi og dagskráin er að taka á sig spennandi mynd. Meðal atriða sem verða á Akureyrarvöku má nefna Retro Stefson karnival í Gilinu, þar sem hljómsveitin tekur á móti fjölbreyttum gestum, alþjóðlegt eldhús í Hofi, heimstónleika á Ráðhústorgi, suðræna og seiðandi Rökkurró í Lystigarðinum, vísindasetur í Rósenborg, tónleika á Akureyri Backpackers, Draugaslóð í Innbænum, nytja- og handverksmarkað, Tweed Ride hjólreiðar í klassískum klæðnaði, Mozartveislu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, útgáfutónleika Hjalta og Láru Sóleyjar í Hofi, fjölda sýninga í Listagilinu, ljósmyndasýningu í miðbænum og tónleika í Sundlaug Akureyrar.
Grafíski hönnuðurinn sem á heiðurinn að útliti Akureyrarvöku 2013 heitir Vaiva Straukaite en hún útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri síðasta vor. Myndin sem prýðir forsíðu fésbókarsíðu hátíðarinnar og er einnig greinileg á öðru kynningarefni er af Vöku Akureyrar sem er einlæg og fjölskrúðug gyðja. Hún tekur öllum opnum örmum og boðar fordómalaust samfélag.
Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri, er verkefnastjóri Akureyrarvöku og þeir sem vilja taka þátt í Akureyrarvöku með eigin atriði geta sent tölvupóst honum tölvupóst á netfangið akureyrarvaka@akureyri.is eða haft samband við Huldu Sif Hermannsdóttur, verkefnastjóra hjá Akureyrarstofu, á netfangið huldasif@akureyri.is.


