Upp úr kl. 1 í nótt lenti flutningabíll með tengivagn í óhappi rétt við bæinn Steinsstaði í Öxnadalnum. Flutningabíllinn var að mæta öðrum bíl og vék út í kantinn með þeim afleiðingum að tengivagninn fór út af en bílstjórinn náði að halda bílnum sjálfum inni á veginum. Engann sakaði.
Stuttu síðar, eða um tvö leytið velti ökumaður bíl sínum á Öxnadalsheiði. Ökumaður, sem var einn í bílnum, var fluttur á slysadeild en er ekki talinn alvarlega slasaður.


