Vonarhátíðin „vonlaust klúður“

Vonarhátíðin „vonlaust klúður“

Hildur Eir Bolladóttir

Mikill urgur er í samfélaginu með að kirkjan hafi auglýst Hátíð vonar, samkomu sem haldin verður í Laugardalshöll í lok septembermánaðar á sama tíma og fram fara Hinsegin dagar. Einkum er umdeilt að Franklin Graham, sonur trúarleiðtogans Billy Graham, hefur verið kallaður til að flytja ræðu. Franklin þessi Graham hefur ítrekað í fjölmiðlum vestra lýst yfir andúð á lífstíl og hjónavígslum samkynhneigðra.

Á Facebook hafa nokkrir prestar tekið þátt í umræðum. Þar á meðal Sigríður Guðmarsdóttur, prestur í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Sigríður fordæmir komu Grahams og hefur komið athugasemdum áfram.

Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur skrifar í athugasemd á Facebook að aðstandendur Hátíðar vonar hafi leitað stíft eftir þátttöku Þjóðkirkjusafnaða. „Ég hafnaði því fyrir hönd Dómkirkjunnar. Vildi fólk í Dómkirkjusöfnuði taka þátt væri það að sjálfsögðu hvers og eins að ákveða fyrir sitt leyti - í frjálsu samfélagi.“

Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju segir á Facebook: „Þetta er alveg vonlaus hátíð og eitthvert ægilegt klúður.“

Annar norðlenskur prestur, Arnaldur Bárðarson, sem þjónaði um skeið í Glerárkirkju varar við alhæfingum um kirkjuna vegna málsins og segir um hugtakið „atvinnuhommahatara“ sem orðið hefur til í fréttaumræðu um Graham þennan: „Við skulum hafa i huga að mjög stórir hópar kristinnar kirkju hafa ekki gengið jafn langt i stuðningi við málefni samkynhneigðra og íslenska kirkjan. Við getum ekki uppnefnt þau öll og slitið okkur úr tengslum við þá stóru fjölskyldu bara vegna þessa eins. Margt hefur áunnist í samstarfi kristinna kirkna um gjörvallan heim með samtali og umræðu og ekki ástæða að ganga hér ofan í skotgrafir fjandskaparins.“

-BÞ

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Tvö óhöpp í Öxnadal í nótt

Upp úr kl. 1 í nótt lenti flutningabíll með tengivagn í óhappi rétt við bæinn Steinsstaði í Öxnadalnum. Flutningabíllinn var að mæta öðrum bíl og vék út í kantinn með þeim afleiðingum að tengivagninn ... Lesa »

Um okkur druslurnar

Við erum báðar bölvaðir slúðrarar og viðurkennum það af fúsum og frjálsum vilja. Við förum oft með rangt mál og dæmum aðra í kringum okkur á einhverjum gróusögum og pískri. Eitt sem við gerðum (en ... Lesa »

Heldur hugleiðsla okkur ungum og heilbrigðum?

Margar frásagnir eru til af jógum sem hafa náð háum aldri án þess að bera merki um þennan mikla aldur utan á sér. Enn fleiri eru til um fólk sem finnur nýjan lífsþrótt af því að gera jóga og ... Lesa »

Kári Steinn Karlsson sigraði Jökulárshlaupið

Hið árlega Jökulsárhlaup var haldið í 10. sinn um helgina og boðið var upp á ýmsar vegalengdir fyrir hlaupara. Flestir hlaupa lengstu leiðina, eða frá Dettifoss að Ásbyrgi. Það voru alls 220 keppendur ... Lesa »

Síðasti dagur Handverkshátíðar er í dag

Síðasti dagur Handverkshátíðarinnar er í dag en aðsóknarmet var slegið sl. föstudag og hafa aldrei jafn margir gestir komið á hátíðina á föstudegi. „Ester Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar ... Lesa »

Akureyrarvaka tileinkuð fjölmenningu

Nú styttist í Akureyrarvöku sem er afmælishátíð Akureyrar og haldin er á hverju ári síðustu helgina í ágúst. Þema Akureyrarvöku þetta árið er fjölmenning en fólk af rúmlega sextíu þjóðernum býr á ... Lesa »

Rýr uppskera hjá knattspyrnuliðum bæjarins um helgina

Bæði karlalið KA og Þór voru í eldlínunni um helgina þegar liðin kepptu í 1. og Pepsi-deild karla. KA fékk Leikni í heimsókn á Akureyrarvöll og voru heilladísirnar ekki með KA mönnum þann daginn en ... Lesa »

Akureyri fer í æfingarferð til Þýskalands

Handboltapiltarnir úr Akureyri Handboltafélag halda til Þýskalands í byrjun vikunnar þar sem þeir munu dvelja í viku við æfingar og keppni. Þetta er hluti af undirbúningi liðsins fyrir komandi átök í ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Ók fram af Glerárbrúnni

Umferðaróhapp átti sér stað við brúna á Glerárgötu seint í gærkvöldi. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum sem ekið var í suðurátt eftir Hörgárbraut með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á ... Lesa »

„Are you going to Scarborough Fair“ / „Halló, Akureyri“

Dagbókarslitur úr Englandsferð „Are you going to Scarborough Fair“ - óskapleg áþján hlýtur það að vera íbúi þessa bæjar og vita að þetta er vitneskja heimsbyggðarinnar um heimahagana; lína úr ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Af sundi, útisvefni og menningarmun

Í sumar höfum við hjónin reglulega komist í tæri við hópa af amerísku ferðafólki. Fólkið er áhugasamt um að kynnast landinu í gegnum samveru við íslenska frumbyggja. Fólkið hefur að sjálfsögðu mikinn ... Lesa »

We are so unique

Hiti, sviti og þreyta eru þau orð sem lýsa best líðan minni þegar við komum loks til Taize í suðurhluta Frakklands þann 22.júlí síðastliðinn. Taize er lítið þorp sem hverfist um klausturreglu sem ... Lesa »

Fyrsti hestur á Súlur í hundrað ár!

Glæsileg ferð var farin á eitt fegursta fjall Tröllaskagans fyrir skemmstu, drottninguna Súlur. Þar tóku um 45 manns áskorun Icelandair hótelsins á Akureyri, dubbuðu sig upp og gengu alla leið á ... Lesa »

Sigfús Fossdal setti íslandsmet á Evrópumóti

Akureyringurinn Sigfús Fossdal keppti í dag á Evrópumeistaramóti í bekkpressu sem fram fór í Bratislava. Sigfús var eini fulltrúi Íslands á mótinu en hann keppir nú fyrir kraftlyftingafélagið Víking á ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að nokkur óánægja hafi skapast meðal foreldra og barna sem lögðu leið sín í miðbæ Akureyrar um helgina til að verða vitni að „karamelluregni“. Engin flugvél dreifði karamellunum eins og ... Lesa »

Villisveppapizza

Nú eru villisveppirnir komnir í norðlenska skóga og tilvalið að nýta þetta magnaða hráefni meðan færi gefst. 7 gr þurrger 1 msk hrásykur 2 dl volgt vatn 1 msk ólífuolía 300 gr hveiti 1 ... Lesa »

Píkublóm: lofgjörð til kvenleikans

Myndlistarsýning Brynju Harðardóttur í sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu Akureyri 3. - 11. ágúst og opnunargjörningur Lilý Erlu Adams­dóttur. Brynja Harðardóttir sýnir ellefu olíu- og ... Lesa »

Svavar Knútur með tvenna tónleika

Trúbadorinn Svavar Knútur heldur nú um helgina tvenna tónleika til styrktar æskulýðsstarfi í Akureyrarkirkju og Laufásprestakalli. Fyrri tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju í kvöld kl. 21.00 og þeir ... Lesa »

KA-menn taka á móti Leikni

KA tekur á móti Leikni úr Breiðholtinu í 15. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í dag. Að venju er leikið á Akureyrarvelli og hefst leikurinn klukkan 16.00. Fyrir KA-menn, sem ætla sér upp um ... Lesa »

Fjórar myndlistarsýningar opna

Það verður að vanda nóg um að vera í myndlistarlífinu á Akureyri um helgina. Nýjar sýningar opna í Ketilhúsi, Deiglunni, Mjólkurbúðinni, Kartöflugeymslunni, Populus tremula og Flóru. Einnig gefst ... Lesa »

Missir

Þegar sorglegir atburðir eiga sér stað í litlum bæ, þar sem margir þekkja svo marga, virðist tíminn einhvern veginn frjósa. Allt verður kyrrt og hljótt og fólk sameinast í skilningi og samkennd, orð ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fá forráðamenn sundlaugarinnar í Laugum, segir karl sem brá sér í sund í Reykjadalnum. Hann bendir á að lofið fái Reykdælingar fyrir sundgleraugu sem allir sundlaugargestir geti notað. Eflaust sé ... Lesa »

Klám í auglýsingu Flugmódelfélags Akureyrar

Skilti á vegum Flugmódelfélags Akureyrar sem stendur við Hrafnagil hefur vakið athygli vegfaranda sem telur eina myndina á skiltinu klámfengna og ekki við hæfi í auglýsingu. Vegfarandinn kvartaði til ... Lesa »

Mörgæs í miðbæ Akureyrar?

„Er þetta ekki mörgæs?“ sögðu tveir menn og bentu á einmanalegan fugl sem spókaði sig við Umferðamiðstöðina á Akureyri í morgun. Þegar betur var að gáð reyndist fuglinn ekki mörgæs heldur langvía en ... Lesa »

Vonarhátíðin „vonlaust klúður“

Mikill urgur er í samfélaginu með að kirkjan hafi auglýst Hátíð vonar, samkomu sem haldin verður í Laugardalshöll í lok septembermánaðar á sama tíma og fram fara Hinsegin dagar. Einkum er umdeilt að ... Lesa »

Skoða meira