SAF – Samtök ferðaþjónustunnar veittu í dag nýsköpunarverðlaun 2013 á Center Hótel í Reykjavík. Það var fyrirtækið SAGA TRAVEL sem hlaut verðlaunin en þetta er í tíunda sinn sem samtökin veita verðlaunin en í dag er 15. afmælisdagur samtakanna.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars: „Það fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin í ár er nýlegt en þó búið að skapa sér verðugan sess í íslenskri ferðaþjónustu og sannarlega verið vítamínsprauta í vöruþróun ferðaþjónustu norðan heiða. Saga Travel, er alhliða ferðaskipuleggjandi og ferðaskrifstofa sem lagt hefur metnað sinn í vöruþróun í samvinnu við fjölda fyrirtækja á landinu öllu og heimafólk á Norðurlandi.“
„Fyrirtækið Saga Travel býður ferðir á vel þekkta staði sem lengi hafa verið nýttir sem áfangastaðir íslenskrar ferðaþjónustu. Sú nýjung er í starfsemi fyrirtækisins að boðið er upp á ferðir á óhefðbundnum tímum sólarhringsins. Þannig hefjast sumar ferðir uppúr hádegi og lýkur um miðnætti og aðrar eru jafnvel yfir nóttina, jafnt að sumri sem vetri. Upplifun af laugum, víðernum og einstakri náttúru landsins er annars eðlis á þessum tíma og er tímasetning ferðanna meira í takt við þá sem leita þess að brjóta upp hversdagsleikann. Telur dómnefnd að fyrirtækið sé vel að verðlaununum komið fyrir þessa vöruþróun og einnig fyrir metnað og dugnað í ferðaskipulagi og öfluga þróun á ferðaþjónustu.“
-SBS





























