Lifandi tónlist hefur að undanförnu verið leikin á miðvikudögum á Akureyri Backpackers. Á morgun er komið að þríeykinu í MAFAMA að leika rafpopp. Strákarnir í MAFAMA léku síðast í Hofi við góðan orðstír í tengslum við tónleikaröðina „Sérfræðingar að sunnan“.
Miðvikudaginn 20. Nóvember er komið að Sockface, 27. nóvember leikur Axel Flóvent og þann 11. desember verður það Kristján Pétur sem lætur ljós sitt skína. Það verður því nóg um að vera á Akureyri Backpackers á komandi vikum.
Tónleikarnir á morgun byrja kl. 21:30 en aðrir kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis





























