Forsvarsmenn þriggja sveitarfélaga og sjö ferðaþjónustuaðila hafa sent frá sér yfirlýsingu um að óviðunandi sé að ekki sé gert ráð fyrir fjárveitingu til endurbóta eða uppbyggingar á Kjalvegi í samgönguáætlun til tólf ára né verkefnaáætlun til fjögurra ára.
„Ferðaþjónustan dregur vagn samfélagsins eftir hrun ásamt öðrum gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum. Hún skilaði 238 milljörðum króna í gjaldeyristekjur á árinu 2012 og skilar enn meiru 2013,“ segir í yfirlýsingunni og fullyrt að vegurinn í núverandi ástandi skemmi bíla og skaði ímynd landsins og ferðaþjónustunnar.
„Við gefum okkur að margir kysu helst veg með bundnu slitlagi um Kjöl en ef ekki fást fjármunir til slíkra framkvæmda er lágmarkið að í stað niðurgrafins vegslóða komi greiðfær „ferðamannavegur“ sem stendur upp úr umhverfi sínu,“ segir einnig í yfirlýsingunni en það eru þau Þóra Sverrisdóttir, oddviti Húnavatnshrepps, Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar, Ragnar Magnússon, oddviti Hrunamannahrepps, Allrahanda ehf., Fannborg ehf., Fjallamenn ehf., Gljásteinn ehf., Hveravallafélagið ehf., SBA ehf., og Sterna ehf..
Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér




























