Strætisvagn á leið 79 til Húsavíkur valt á hliðina og út af veginum rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Mikil hálka og krapi var á veginum þegar slysið varð og töluverður vindur. Einn farþegi var um borð, en hann sakaði ekki en vagnstjórinn hlaut áverka og kalla þurfti til tækjabíl slökkviliðsins til að losa hann úr bílnum. Ákveðið var að flytja hann í sjúkrabíl til Akureyrar til aðhlynningar en þar sem Víkurskarðið var ófært þurfti að kalla út snjóruðningstæki til að fara á undan sjúkrabílnum eftir því sem fram kemur á fréttavefnum 641.is.
Víkurskarðið er nú opið umferð en krap og snjóþekja er á veginum.
-SBS



























