„Stöðugleika verður ekki náð á Íslandi með því að launþegar stilli kröfum sínum í hóf. Fleira þarf að koma til. Stjórnvöld verða að leggja fram trúverðuga efnahagsstefnu sem tryggir stöðugt gengi og verðlag. Þá hafa verðlagshækkanir sem átt hafa sér stað að undanförnu aukið á óstöðugleika og þær hækkanir sem lesa má út úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaga vegna ársins 2014, vekja ekki vonir um að vilji sé til þess að koma á stöðugleika. Þessar hækkanir eru ögrun við íslenskt launafólk sem hefur tekið á sig ómældar byrðar frá efnahagshruninu 2008.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samþykkt var á þingi Landssamband íslenska verzlunarmanna sem haldið var á Akureyri um liðna helgi.
Kannanir sem gerðar hafa verið meðal verslunar- og skrifstofufólks sýna að meirihluti þeirra leggur áherslu á aukinn kaupmátt og hækkun lægstu launa. Sambandið telur að takist að koma á stöðugleika megi ná markmiðum um aukinn kaupmátt með minni launabreytingum. „Eigi árangur að nást í að koma á stöðugleika sem leggur grunn að aukinni hagsæld verða allir að róa í sömu átt. Atvinnulíf og stjórnvöld verða að leggja sitt að mörkum. Íslenskt launafók verður ekki eitt gert ábyrgt fyrir því að koma á stöðugleika,“ segir einnig í ályktuninni.
Sambandið sendi einnig frá sér ályktun varðandi menntunarmál fólks í þjónustu- og verslunarstörfum og leggur til að nám í verslunar- og þjónustugreinum leiði til sérhæfðs prófs og viðurkenningar af svipuðum toga og iðnmenntun. „LÍV hvetur atvinnulífið til að sýna í verki vilja sinn til að efla menntun starfsmanna í verslun og þjónustu með því að taka undir kröfur LÍV í starfsmenntamálum eins og þær eru settar fram í kröfugerð sambandsins. Í kröfugerðinni er áhersla lögð á að starfsmenntun verslunar- og þjónustufólks sé markviss, í takt við þarfir atvinnulífsins og metin til launa,“ segir þar einnig.
-SBS



























