Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir nemandi á fjórða ári í MA sigraði ræðukeppni sem fram fór á ensku. Keppnin er haldin er á vegum ESU (English Speaking Union) og FEKÍ (Félag enskukennarafélag á Íslandi). Umræðuefnið í ár var Ideas are our Greatest Weapons.
Ásgerður Ólöf flutti ræðu þar sem hún bar saman aðstæður sínar við aðstæður Malölu Yousafzai baráttukonu fyrir menntun stúlkna. Undanriðlar fóru fram í HR sl. föstudag og flaug Ásgerður í úrslit. Sjálf úrslitin á laugardeginum voru æsispennandi en þar öttu kappi fulltrúar frá FÁ, Versló, MH og MA. Ásgerður Ólöf sigraði með glæsibrag og er á leið til London í maí að keppa fyrir hönd Íslands við fulltrúa frá 50 þjóðlöndum. Umræðuefnið í London verður: Imagination is more important than knowledge. Enskudeild MA mun aðstoða Ásgerði Ólöfu varðandi undirbúning.
-SBS





























