Ljótu hálfvitarnir fengu ekki miða á landsleikinn, enda kvöldsvæfir menn og klaufar á tölvu. Til að deyfa vonbrigðin hyggjast þeir brjótast norður til Akureyrar föstudaginn 15. nóvember og leika og syngja fyrir þá sem verða staddir á Græna hattinum þá um kvöldið og svo aftur kvöldið eftir. Með þessu lýkur tónleikaári Hálfvitanna, þeir skríða á ný inn í hýði sitt og dvelja þar fram á vor.
Þetta er þvi síðasti séns að berja þá eyrum og augum (og nefi fyrir þá sem hafa gaman af slíku) um allnokkra hríð. Ef „hríð“ er rétta orðið.
Forsala á tónleikana er hafin í Eymundsson en Haukur Tryggvason segir hafa verið uppselt á alla tónleika Ljótu hálfvitanna á Græna hattinum.




























