Hljómsveitin Bloodgroup mun koma fram á þriðju útgáfu tónleikaraðarinnar Sérfræðingar að Sunnan, en hún fer fram í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Tónleikarnir fara fram fimmtudaginn 14. nóvember og hefjast kl. 20:30. Norðlenska nýstirnið Nolem mun hefja tónleikana og njóta liðsinnis rapparans knáa Kött Grá Pje, en þeir félagar slógu eftirminnilega í gegn síðast liðið sumar með smellinn Aheybaró, sem náði efsta sæti vinsældarlista Rásar 2.



























