Göngum og réttum flýtt vegna veðurs

Göngum og réttum flýtt vegna veðurs

Móru frá Presthvammi var bjargað úr fönn sl. haust. Mynd: Þorsteinn Jónsson

Fjallskilastjórar í Þingeyjarsýslu ákváðu á fundi með sýslumanni, almannavörnum og ráðanauti á Húsavík í kvöld að flýta göngum í allri suður-Þingeyjarsýslu og Kelduhverfi vegna slæmrar veðurspár fyrir komandi helgi. Á sumum svæðum verður farið í göngur strax á morgun, en á miðvikudag og fimmtudag á öðrum svæðum. Stefnt er á að rétta í flestum réttum sýslunnar áður en óveðrið skellur á og vonast bændur eftir skaplegu veðri fyrrihluta föstudags til þess. Þetta kemur fram á fréttavefnum 641.is

Sæþór Gunnsteinssonn bóndi í Aðaldal sem sat fundinn segir samtali við blaðamann 641.is að einhugur hafi verið meðal bænda um að flýta göngum vegna veðursins því enginn vildi lenda í því sama og í fyrra þegar mörg hundruð kindur drápust í septemberóveðrinu.

Samkvæmt nýjustu veðurspá verður veðrið heldur verra en spáð var í morgun og lægðin heldur dýpri en sú sem olli óveðrinu í fyrra. Henni á að fylgja mikið hvassviðri og gríðarleg úrkoma sem verður sennilega að mestu leiti snjókoma ofan við 200 metra hæðarlínu. Einungis átta vikur eru liðnar síðan bændur í Aðaldal slepptu fé í afrétt og verður því viðvera þess í afrétt óvenju stutt þetta árið.

Einnig hafa borist af því fréttir að göngum og réttum verði flýtt í Skagafirði og í Grýtubakkahreppi

-SBS

Það er margt um manninn á heimskringlu í Hofi

Stemmningin á Akureyrarvöku - myndir

Það hefur verið líf og fjör það sem af er Akureyrarvöku og nóg er eftir enn. Ljósmyndarinn Daníel Starrason er á ferðinni með myndavélina og hér má sjá brot af stemmningunni. ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að lúkasarsyndróm númer eitthvað hafi enn dúkkað upp en sá kvittur gekk um Akureyri í vikunni að sérlega hættulegur og alþekktur barnaníðingur væri fluttur til Akureyrar. Maðurinn sem um ... Lesa »

DST_8059

Litrík dagskrá Akureyrarvöku í dag

Akureyrarvaka hófst í gærkvöldi í prýðilegu veðri með Rökkurró í Lystigarðinum og Draugagöngu um Innbæinn. Dagskráin nær hápunkti sínum í dag með alls kyns uppákomum og viðburðum. Í Listagilinu ... Lesa »

Fjallagrasabrauð

Fjallagrasabrauð

10 gr fjallagrös (um 2 lúkur) vatn 375 gr heilhveiti 75 gr malað byggmjöl 100 gr hafragrjón 35 gr sólblómafræ 2 msk pálmasykur eða hrásykur 1 msk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1 tsk ... Lesa »

Urdur Snædal

Óraði ekki fyrir þessari dökku hlið Akureyrar

Lögreglan á Akureyri hefur upplýst fjársvikamál þar sem Akureyringur á þrítugsaldri sveik pening út úr 10-12 borgurum með því að þykjast eiga vörur og bjóða til sölu á mjög góðu verði. Urður Snædal, ... Lesa »

download

Plastpokalaus laugardagur á morgun

Á hverjum degi fellur til ótrúlegt magn úrgangs úr plasti í veröldinni. Þar fara framarlega í flokki hinir sívinsælu plastpokar, en talið er að um 1 triljón plastpoka skili hlutverki sínu á heimsvísu ... Lesa »

Það er ekki síst meðgöngujóga sem þær stöllur Birna og Sandra bjóða upp á

Ringulreið í samtímanum

Ný stöð fyrir jóga, Jógahofið, verður opnuð á Akureyri um mánaðamótin Aðstandendur segja mikið streituástand hafa einkennt þjóðfélagið okkar að undanförnu. „Samkvæmt jógafræðunum erum við nú á leið ... Lesa »

Lára og Hjalti

Fyrsta plata Hjalta og Láru Sóleyjar

Eftir að hafa komið saman fram yfir 500 sinnum á síðustu átta árum gefa hjónin Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir loks út sína fyrstu plötu nú í lok ágúst sem nefnist einfaldlega Hjalti og ... Lesa »

Bakki við Húsavík. Þar sem áætlað er að reisa kísilmálmverksmiðju.

Mikil jarðskjálftahætta á Húsavík

Í kjölfar aukinnar jarðskjálftavirkni á Norðurlandi var ráðstefna um málefnið haldin á Húsavík í byrjun júní sl. og í samantekt frá ráðstefnunni kemur fram að full ástæða sé til að endurmeta ... Lesa »

Danni

Tónlistarlífið á Norðurlandi á veggjum Hofs

Ljósmyndarinn Daníel Starrason opnar í dag sýningu sem ber heitið Norðlenskt tónlistarfólk. Allar myndirnar á sýningunni eru svarthvítar portrettmyndir af tónlistarfólki sem á rætur að rekja norður ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Eining-Iðja fyrir „endalausan skrúðfjaðraleik“ í stað þess að hugsa um það sem mestu máli skiptir; að bæta kjör verkafólks. Svo skrifar ungur Norðlendingur en Eining-Iðja fékk sérstakt lof í ... Lesa »

Að fara í berjamó er fjölskylduskemmtun

Rjóminn seldist upp!

Berjatínsla Norðlendinga hefur náð hámarki ef veðurspá gengur eftir. Mikið hefur verið tínt af berjum, einkum krækiberjum, bláberjum og aðalbláberjum og mátti sl. sunnudag sjá fólk í berjamó út um ... Lesa »

Jón Gunnar, framkvæmdastjóri Akureyrarvöku

Áhættusöm tilraun sem gæti misheppnast

Bæjarhátíðin Akureyrarvaka verður haldin um helgina. Akureyrarvaka fer fram í tilefni afmælis Akureyrarbæjar, en vond veðurspá hefur orðið til þess að ekki er alveg víst hvort fyrirhuguð dagskrá mun ... Lesa »

Sumir kalla eftir meira gagnsæi í stjórnsýslunni, en flestum þykir nóg um þegar viðkvæm mál eru rædd í heyranda hljóði

Hnýsni vandamál hjá sýslumanni?

Aðstaða hjá þeim sem þurfa að leita til Tryggingastofnunar vegna viðkvæmra og persónulegra mála er fyrir neðan allar hellur að mati Guðnýjar Gunnlaugsdóttur sem hefur sent sýslumanni bréflega kvörtun. ... Lesa »

Hundraðasta tölublaðið!

Í dag kom út 100. tölublað vikublaðsins Akureyri. Fyrsti útgáfudagur var 11. ágúst árið 2011. Blaðið markaði frá fyrsta degi spor í íslenskri þjóðmálaumræðu. Ekki bara á Norðurlandi heldur var fyrsta ... Lesa »

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin fest í sessi

Fulltrúar Akureyrarbæjar, Stefnu, Tækifæris og Háskólans á Akureyri undirrita samninginnÍ dag skrifuðu fulltrúar Háskólans á Akureyri, Stefnu hugbúnaðarhúss, Tækifæris fjárfestingasjóðs og ... Lesa »

Fjölgun forritara á Dalvík

Rekstur Dalpay á Dalvík gengur vel um þessar mundir. Fyrirtækið fæst við svokallaða færslumiðlun þar sem vörur eða ýmist seldar í eigin nafni eða greiðslugátt notuð. Forstjóri, Björn Snorrason, segir ... Lesa »

Aðeins átta vikur á fjalli

Fjölmörg dæmi erum að sauðfjárbændur hafi ákveðið að flýta göngum og réttum vegna norðan illviðris, hvassviðris, úrkomu og jafnvel snjókomu sem gert er ráð fyrir á morgun og laugardag. Áður auglýst ... Lesa »

Einar Mikael töframadur sýnir í Hofi um helgina

Alþjóðleg matarveisla í Hofi

Á laugardaginn fer fram alþjóðleg matarveisla í Hofi þar sem hægt verður að smakka á kræsingum frá yfir tuttugu þjóðlöndum. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Akureyrarvöku sem í ár er tileinkuð ... Lesa »

Víða rökrætt um Reykjavíkurflugvöll

„Þeir sem vilja leggja af innanlandsflug til Reykjavíkur þurfa að koma með lausnir á neyðarsjúkraþjónustu við landsbyggðina. Þær eru eflaust fjölmargar. Til að mynda mætti koma upp alvöru spítala ... Lesa »

KA tekur á móti Tindastóli

KA tekur á móti Tindastól í 1. deild karla í knattspyrnu í dag og hefst leikurinn klukkan 18.00. Eins og venjan er leika KA menn á Akureyrarvelli. Síðast þegar þessi lið mættust skildu þau jöfn, ... Lesa »

Garðaskoðun og býflugnabú

Í dag kl. 17 mun Garðyrkjufélag Akureyrar standa fyrir garðaskoðun en það er garður Björns Steinars Sólbergssonar og Hrefnu Harðardóttur að Heiðartúni í Eyjafjarðasveit sem verður skoðaður. Björn ... Lesa »

Vill fjölga fæðingardeildum í þágu öryggis

Íslensk heilsugæsla tekur ekki sem skyldi mið af vondu vetrarveðri og vanmetur óöryggi þess þáttar hvað varðar barnsfæðingar í dreifðum byggðum. Þetta á ekki síst við um norðurhluta landsins að mati ... Lesa »

Öruggur sigur Þór/KA á Þrótti

Þór/KA tók á móti botnliði Þróttar í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Rjómablíða var á Þórsvelli, lognið á undan storminum, og litu fimm mörk dagsins ljós. Þau voru öll norðankvenna og lyftu þær sér upp í ... Lesa »

Stórtækt svindlmál upplýst

Lögreglan á Akureyri hefur upplýst stórfellt svindlmál þar sem Akureyringur á þrítugsaldri hefur haft hundruð þúsunda af almennum borgurum með svikum og prettum. Alls ræðir um 10-12 mál. Maðurinn ... Lesa »

Skoða meira