Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar lét bóka á síðasta fundi sínum harðorð mótmæli vegna ónægju foreldra með skólaakstur. Í bókuninni segir ekki hafi verið haft samráð við skólanefnd vegna þeirrar ákvörðunnar að flýta skólaakstri á morgnana.
„Nefndin vill benda sveitarstjórn á að skv. reglugerð 656/2009 skal sveitarstjórn setja reglur um skólaakstur að fenginni umsögn skólanefndar. Það var ekki gert og kynning á þessu breytta fyrirkomulagi kom mjög seint. Skólanefnd er sammála um að skora á sveitarstjórn að draga þessa ákvörðun um breytta tilhögun skólaaksturs til baka,“ segir í bókuninni.
Foreldri skólabarns í Eyjafjarðarsveit segir að það sé óvenjulegt að svo stór nefnd eins og skólanefnd samþykki svo harðorða yfirlýsingu þar sem meirihluti hennar styðji jafnframt meirihluta sveitarinnar, H lista. Akstri var flýtt fyrir grunnskólanemendur þar sem nota á sömu vagna fyrir nemendur í framhaldsskólum. Þetta þýðir að sum börn þurfa að vakna milli klukkan 6 og 6:30 þar sem bíllinn kemur kl. 7:00 á fyrstu bæi. Hafragrautur er í boði fyrir fyrstu kennslustund sem hefst kl.08.15.







