Ágúst Jensson ráðinn framkvæmdastjóri GA

Ágúst Jensson ráðinn framkvæmdastjóri GA

Ágúst Jensson er spenntur að taka við starfi framkvæmdastjóra GA. Mynd af vef GA

Golfklúbbur Akureyrar hefur ráðið Ágúst Jensson sem framkvæmdastjóra en alls bárust 23 umsóknir um starfið. Ágúst hefur mikla reynslu sem nýtist í starfi en hann hefur að undanförnu starfað sem yfirvallastjóri golfvalla Golfklúbbs Reykjavíkur, en hefur einnig verið vallarstjóri Korpúlfsstaðarvallar og unnið á Kings og Queens golfvöllunum á Gleneagles í Skotlandi. „Við teljum okkur hafa náð í mjög góðan mann þarna því hann hefur víðtæka og skemmtilega reynslu og menntun, sem nýtist vel í okkar starfi“ segir Jón Steindór Árnason varaformaður GA.

Ágúst er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur auk þess lokið námi í golfvallafræðum frá Elmwood College í Skotlandi. Ásamt störfum sínum hjá GR hefur Ágúst sinnt þjálfun í yngri flokkum í körfuknattleik með hléum frá árinu 1997. Þá þjálfaði Ágúst meistaraflokk kvenna í körfuknattleik hjá Fjölni síðastliðinn vetur.

„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu starfi og hlakka mikið til þess að takast á við nýjar og skemmtilegar áskoranir. Það er frábær aðstaða til golfiðkunar á Akureyri og það hefur verið vel staðið að málum þar undanfarin ár þannig að ég er að koma inn í gott og skemmtilegt umhverfi. Svo er mikil tilhlökkun innan fjölskyldunnar að flytja norður og setjast að á nýjum og skemmtilegum stað,“ segir Ágúst

Eiginkona Ágústar er Dagbjört Víglundsdóttir og eiga þau tvær dætur. Dagbjört starfar á fjármálasviði Vífilfells og mun halda því starfi áfram eftir flutning til Akureyrar. Ágúst hefur störf þann 1. nóvember næstkomandi.

-SBS

Leitað að konu á Súlum

Björgunarsveitin Súlur er nú á leið til aðstoðar erlendri ferðakonu sem er í vanda á Súlum. Hún hugðist ganga á fjallið eftir stikaðri leið en tapaði áttum og er komin út af henni. Veður er ekki ... Lesa »

Valdmörk barnaverndarnefnda

Sandra Hlíf Ocares héraðsdómslögmaður ræðir um barnaverndarkerfið og hlutverk þess samkvæmt lögum, löggjöfina í kringum það, málsmeðferð í barnaverndarmálum og valdmörk barnaverndarnefnda ... Lesa »

Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs FSA

Aukin veikindi og fjarvistir hjá FSA valda kostnaði

Nærri lætur að eitt af hverjum átta störfum á Sjúkrahúsinu á Akureyri hafi tapast í niðurskurði síðustu ára. Þetta kemur fram í pistli Vignis Sveinssonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs á vef ... Lesa »

Berja ís af raflínum

Hálka og éljagangur er nú á Víkurskarði og á Öxnadalsheiði eru hálkublettir og snjóþekja en Vegagerðin er nú við mokstur á heiðinni. Vegfarendur geta átt von á hálku og krapa jafnvel niður í byggð og ... Lesa »

Björn Valur skoðar málin

Björn Valur Gíslason, fyrrum þingmaður VG, segir að hann útloki ekki að bjóða sig fram til bæjarstjórnar í kosningum á Akureyri næsta vor. Hins vegar telji hann það þó ólíklegra en hitt. Andrea ... Lesa »

Þakplötur losnuðu á Akureyri

Þakplötur losnuðu nú fyrir stuttu á húsi við Gránufélagsgötu þar sem framkvæmdir höfðu staðið yfir. Björgunarmenn úr björgunarsveitinni Súlum voru kallaðir á staðinn eru nú búnir að fergja ... Lesa »

bjorgun

Bílar fastir í Námaskarði

Rétt í þessu var verið að kalla út Björgunarsveitina Stefán í Mývatnssveit til að aðstoða bílstjóra sex bifreiða sem fastar eru í Námaskarði. Björgunarsveitir eru nú að störfum víða um landið, þar ... Lesa »

Ekta tómatsósa

Þegar þú hefur smakkað alvöru heimalagaða tómatsósu þá hættirðu að kaupa hana úti í búð. Hana er einfalt að búa til og í hana mega fara van- eða ofþroskaðir tómatar, linir eða harðir, bleikir eða ... Lesa »

Pálmi sló í gegn

Akureyringurinn Pálmi Gunnarsson sló gjörsamlega í gegn á yfirlitstónleikum sem hann hélt í Eldborgarsal Hörpu sl. helgi. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að halda ... Lesa »

Öruggur sigur Þór/KA á ÍBV í lokaumferðinni

Stúlkurnar í Þór/KA unnu öruggan heimasigur á ÍBV í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Leikið var á Þórsvelli við prýðisgóðar aðstæður. Sandra María Jessen skoraði tvö marka Þór/KA í ... Lesa »

Síðasti heimaleikur KA-manna var sigur

KA tók á móti Þrótti R. í síðasta heimaleik þeirra gulklæddu í sumar í dag. Leiknum lyktaði með 3-1 sigri KA, sem var mun sterkari aðilinn í leiknum. Með sigrinum skaust KA upp í 6. sætið en þar eru ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að klaufagangur í heilbrigðisráðuneytinu í tíð Ögmundar Jónassonar hafi að nokkru orðið til þess að Þorvaldur Ingvarsson, fyrrum lækningaforstjóri FSA, hafi ekki komið til greina sem ný ... Lesa »

Hjörleifur Hallgríms

Furðuleg afstaða bæjarstjórnar Akureyrar

Að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni er mál upp á líf og dauða ásamt fleiri atriðum. Hver sveitarstjórnin af annarri hefur lýst yfir stuðningi við það mál og hvatt fóllk til að vera með í ... Lesa »

Mikilvægt að kynna foreldrum rétt sinn í barnaverndarmálum

Þegar úrskurðað er um varanlegt fóstur barna sem tekin eru frá foreldrum sínum vegna ýmissa mála leggja starfsmenn barnaverndar viðkomandi sveitarfélags fram tillögu þess efnis til ... Lesa »

Hef gert heiðarlega tilraun til að vera eðlilegur!

Svarfdælingurinn Hugleikur Dagsson kom, sá og sigraði í Hofi um síðustu helgi. Þá hélt hann uppistand sem mæltist að sögn nærstaddra afar vel fyrir. Akureyri vikublaði lék forvitni á að vita meira um ... Lesa »

Akureyri keppir í Útsvarinu í kvöld

Lið Akureyrar keppir við lið Reykjavíkur í fyrsta þætti spurningaþáttarins Útsvars sem fram fer í kvöld. Fyrir hönd Akureyringa keppa þau Arndís Bergsdóttir, Haraldur Egilsson og Sigurður Erlingsson ... Lesa »

Hríseyingar funda um framtíðarmöguleika

Áhugahópur um framtíð Hríseyjar boðar til málþings laugardaginn 14. september nk. Umræðuefni fundarins verða m.a. atvinnumál, byggðaþróun, þjónusta við íbúa, samgöngur, sumarhús, afþreying, ... Lesa »

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson

Ákvörðun um sviðsforseta frestað

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson, frestaði í gær á fundi Hákólaráðs skipun nýs sviðsforseta hjá hug-og félagsvísindasviði Háskólans. Rektori ber að leggja mat sitt undir ráðið ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Seðlabankinn fyrir slæleg vinnubrögð og fúsk í málsókn sinni gegn Samherja. Svo skrifar karl. Hann segist ekki taka afstöðu til deilunnar sem slíkrar en ótrúlegt sé að sjá fjármunum ... Lesa »

Peningum ekki eytt í hausatalningu í strætó

Akureyrarbær og Reykjavíkurborg nota ólíkar aðferðir til að kanna fjölda farþega í strætó. Í bréfi sem nemendur í HÍ fengu sent nýlega býðst þeim vinna að telja farþega í strætó fyrir sunnan. Þar ... Lesa »

Segir barnafólki mismunað í Grímsey

Mayflor Perez Cajes, móðir ungs barns í Grímsey, telur leikskólaþjónustu óviðunandi í eynni. Grímsey sameinaðist Akureyrarkaupstað árið 2010 og hefur bærinn að sögn Mayflor ekki uppfyllt allar skyldur ... Lesa »

Héraðsdómur Norðurlands Eystra

Tókst að rota hnífamann eftir árás

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 12 mánaða fangelsi vegna sérlega hættulegrar líkamsárásar. Maðurinn stakk 2. júní sl. annan mann með hnífi í síðuna vinstra megin og tvisvar sinnum í ... Lesa »

Af Olsen og ömmu Dreka

Amma Dreki – í Jóni Oddi og Jóni Bjarna – var einhverskonar framúrstefnu geimamma. Að minnsta kosti þegar ég var að vaxa úr grasi fyrir um fjórum áratugum. Hún var skelegg og sjálfstæð – og ... Lesa »

Njáll Trausti Friðbertsson

Hjartað í Vatnsmýri

Í síðustu viku birtist grein eftir Loga Einarsson bæjarfulltrúa Samfylkingar undir heitinu „Heiftin um Reykjavíkurflugvöll“. Þar kallar hann eftir því að menn ræði saman á málefnalegan hátt og leiti ... Lesa »

Víti til varnaðar

Stúlka í grunnskóla á Akureyri varð nýlega fyrir því að mynd af henni, berri að ofan, sem hún sendi í gegnum forritið Snapchat fór í mikla dreifingu meðal grunnskólanema á Akureyri og hugsanlega ... Lesa »

Skoða meira