Bæjaryfirvöld á Akureyri velta nú fyrir sér sölu á nokkrum þekktum eignum bæjarins svo sem húsnæði LA, Rýminu, Deiglunni og gestavinnustofu í miðbænum. Um þetta varð gerð bókun á síðasta fundi Stjórnar fasteigna. Oddur Helgi Halldórsson, formaður framkvæmdaráðs, segir að bærinn sé að reyna að lækka húsnæðiskostnað.
„Ég tek það fram að við erum aðeins að skoða þennan möguleika. Þessi hús heyra undir Akureyrarstofu og við munum ekkert gera fyrr en búið er að fjalla um þessi mál þar og að vilji sé þar til að selja.“
Oddur Helgi segir að því miður sé rekstrarstaðan þannig að leita þurfi allra leiða til að lágmarka kostnað. „Kannski er þetta ein leið til þess. Hugsanlega og vonandi finnst einhver aðili sem haft gæti starfsemi í þessum húsum og gæti gert það betur en við.“
Hann segir að hús sem iði af lífi séu betri en lítið notuð hús. Hugsanlega þurfi því að kreppa að þeirri starfsemi sem þarna hefur farið fram, en einnig geti skapast tækifæri. „Hugsanlega kemur það eina út úr þessari athugun að ekki þyki ráðlegt að selja þessi hús, en við vitum það ekki nema skoða málið.“
-BÞ







