Ný hraðahindrun á Mýrarvegi á Akureyri hefur verið gagnrýnd harðlega og hafa ökumenn staðhæft í samtölum við blaðið að hraðahindrunin sé bílum svo skæð, að jafnvel þótt ekið sé yfir hana á litlum hraða geti bílar skemmst. Þannig er staðhæft að vitað sé til um a.m.k. tvö tilfelli þar sem olíupanna hafi orðið fyrir hnjaski undir venjulegum bílum sem hafi farið þarna um. Er haldið fram að hraðahindrunin sé gölluð annað hvort hvað varðar lögun eða hæð. Brugðist hefur verið við umkvörtunum með því að mýkja hindrunina með köntum sem ekki voru í upphafi.
Tómas Björn Hauksson, forstöðumaður gatna- og fráveitumála hjá Akureyrarbæ, staðfestir að ein lögregluskýrsla hafi þegar verið gerð vegna tjón sem rakið sé til hindrunarinnar. Bærinn sé að bregðast við með mælingum og athugunum. Tjón verði bætt hjá bíleigendum ef um mistök hafi verið að ræða. Að öðru leyti hafi hann ekki forsendur til að tjá sig um málið á þessu stigi.
-BÞ







