Minningarstund vegna fósturláta verður haldin í Höfðakapellu á Akureyri fimmtudaginn 12. september kl. 16.30. Minningarstundin er hugsuð til að koma til móts við þau ótalmörgu sem upplifað hafa sorg vegna fósturláts.
Að stundinni lokinni verður gengið í nýjan fósturduftreit í kirkjugarðinum, þar sem hægt er að leggja blóm við minnisvarðann.
Minningarstundin er haldin í samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri og Útfararþjónustu kirkjugarða Akureyrar. Prestur er sr.Guðrún Eggertsdóttir, tónlistarflutning annast Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti og Sigríður Hulda Arnardóttir, söngkona.
Athöfnin er öllum opin.







