Eyjafjarðará
Ágúst Ásgrímsson, einn veiðivarða Eyjafjarðarár, stóð tvisvar sinnum menn að veiðum með ólöglegt agn um næstsíðustu helgi. Þetta kemur fram í Flugufréttum og er haft eftir Ágústi að í öðru tilvikinu hafi hann heimsótt veiðimenn sem voru lengur að veiðum en tími sagði til um og sá veiðivörður þá risastórt flotholt í ánni og þykka „slummu” en veiðimennirnir höfðu beitt makríl í trássi við reglur. Í öðru tilviki notuðu veiðimenn maðk.
Ágúst segir í Flugufréttum að öllum þessum mönnum hafi verið vísað úr ánni og enginn þeirra fengi að veiða þar næstu árin. Mál þessara lögbrjóta hafi ekki verið kært til lögreglu. Ágúst segir að stjórn veiðifélagsins hafi talið að skömmin væri lögbrjótunum nægileg refsing, „að viðbættu áralöngu veiðibanni í ánnni.
-BÞ

