Í vikunni var verið að leggja loka hönd á hitaveitulögn sem liggur yfir Húsabakkaflóa í Skagafirði. Þá fór svo illa að skurðgrafa verktakans sem sér um verkið, Steypustöð Skagafjarðar, sökk á bólakaf eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Frá þessu segir á skagfirska fréttamiðlinum feykir.is.
Í viðtali við feyki.is segir Ásmundur Pálmason hjá Steypustöðinni að um hafi verið að ræða síðustu ferð vélarinnar yfir flóann þegar óhappið varð en flóinn hafi verið mjög erfiður yfirferðar vegna bleytutíðar undanfarnar vikur og fór svo að hann varð algerlega ófær vélinni sem vegur alls um 22 tonn. Fengnar voru tvær öflugar vélar hjá Einari Val frá Ási og ein frá Akureyri til að freista þess að ná gröfunni upp. Einnig var notaður svokallaður vatnadreki en hann flýtur bæði á láði og legi. Ásmundur segir að eftir mikinn bardaga og mikið bras hafi vélin náðst upp.
-SBS

