Hljómsveitin SúEllen sem ættuð er frá Neskaupsstað heimsækir höfuðstað Norðurlands um helgina og heldur útgáfutónleika á Græna hattinum á laugardagskvöld. Þar munu þeir félagar kynna nýja plötu sem ber heitið Fram til fortíðar en einnig spila sín þekktustu lög.
Mikil eftirvænting er í hljómsveitarmeðlimum enda langt síðan hljómsveitin hefur spilað á Akureyri en SúEllen hefur sterka tengingu við bæinn því fyrsta hjómplata sveitarinnar var tekin upp í Skriðjöklastúdíóinu á Óseyri og sveitin spilaði gjarnan í Sjallanum á árabilinu 1990-1993. Sveitin hefur verið í nokkrum dvala síðan þá en safnplata með lögum þeirra var gefin út árið 2oo3. Á henni má finna lög á borð við Símon er lasinn, sem fór í 1. sæti vinsældarlista Rásar 2 (1987), Elísa (1988), Kona (1991), Ferð án enda (1992), Þessi nótt (1993) og Svart silki (2003). Sveitin gaf þó út tvö lög árið 2005 sem voru hljóðrituð þegar hljómsveitin ásamt fylgdarliði fór í Pílagrímaför til Dallas þar sem sjónvarpsþættirnir um J.R. og Sue Ellen voru teknir upp og hljómsveitin dregur nafn sitt af.
Nýja platan Fram til fortíðar var plata vikunnar á Rás 2 vikuna 11.-18. ágúst og fékk einkunnina 8,35 hjá Andreu Jónsdóttur og 4 stjörnur í nýlegum dómi.
Hér má hlusta á lagið Vorkvöld í Atlavík af nýjustu plötunni.

