Aðstandendur Heiðu Rósu ásamt Margéti Ríkarðsdóttur, forstöðumanns Skógarlundar
Aðstandendur Heiðu Rósu Sigurðardóttur sem lést 29. apríl á þessu ári komu saman í vikunni og færðu Skógarlundi, miðstöð virkni og hæfingar veglega peningagjöf til minningar um hana. Heiða Rósa naut þjónustu Skógarlundar sem áður hét Hæfingarstöðin, frá árinu 1999 til dánardægurs. Forstöðumaður tók við gjöfinni og þakkaði fyrir hlýhug í garð Skógarlundar.
-BÞ

