Töframaðurinn Einar Mikael sýnir í Hofi í kvöld en á sviðinu má búast við því að sjá konu sagaða í sundur, lifandi dýr, einn heppinn áhorfandi mun svífa í lausu lofti og hlutir hverfa og birtast á ótrúlegan hátt ef marka má upplýsingar um viðburðinn á vef Hofs. Þar kemur fram að Einar sé að undirbúa sig fyrir að setja heimsmet með því að gera flestar sjónhverfingar á 3 mínútum.
„Síðast þegar Einar Mikael heimsótti Akureyri þá sýndi hann fyrir troðfullum Sjalla, 550 manns sáu sýninguna og þurfti að vísa frá 200 manns við hurðina áhuginn var það mikill,“ segir í upplýsingunum. „Jafnt ungir sem aldnir hafa gaman af þessari sýningu og eru foreldrar hvattir til að tryggja sér miða og mæta með börnin sín, því þetta er sannkölluð fjölskylduskemmtun“.
„Einnig gefst gestum tækifæri á að fá mynd af sér með Einari töframanni og ekta Hogward töfradúfum eftir sýninguna“.
-SBS

