Menningarhúsið Hof og Hótel Kea hafa undirritað samstarfssamning sem felur meðal annars í sér samsstarf í markaðsaðgerðum með áherslu á menningarbæinn Akureyri. „Það er auðvitað allra hagur að taka vel á móti þeim gestum sem sækja Akureyri heim og þetta samstarf er hluti af stærra verkefni sem snýst um að bjóða upp á sem fjölbreyttasta þjónustu við þá ferðamenn sem velja að heimsækja bæinn,“ segir Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Hofs og bætir því við að það sé verkefni sem krefjist aðkomu allra aðila sem starfa í verslun og þjónustu á svæðinu.
Fyrsta verkefni Hofs og Hótels Kea í þessu samstarfi felur í sér tilboð á gistingu og á miðum á tónleika Pálma Gunnarssonar sem fram fara í Hofi 8.nóvember næstkomandi. „Pálmi sló algjörlega í gegn þegar að hann spilaði fyrir fullu húsi í Hörpu á dögunum og við finnum að það er mikill áhugi á þessum tónleikum í Hofi“ segir Ingibjörg.
Hrafnhildur E. Karlsdóttir hótelstjóri á Hótel Kea segist fagna samstarfinu enda sé það mikilvægt að eiga í góðu samstarfi við menningarstofnanir bæjarins. „Margir af okkar gestum koma hingað meðal annars til þess að sækja menningarviðburði og við viljum eiga í sem mestu og bestu samstarfi við menningarstofnanir á Akureyri og er þetta samstarf hluti af því.“
-tilkynning

