Myndrænt yfirlit yfir skjálfta af vefnum skelfir.is
Rétt eftir miðnætti í nótt mældist skjálfti 2,8 að stærð fyrir mynni Eyjafjarðar en heldur hefur dregið úr virkni hrinunnar sem hófst aðfaranótt 25. september sl. Stærsti skjálfti hrinunnar mældist 3,8 þann 2. október kl. 19:40 en alls hafa 6 jarðskjálftar stærri en 3 mælst í hrinunni.
-SBS

