Frá fimmtudeginum 10. október til fimmtudagsins 17. október verður ekki aðeins hægt að fá lánaðar bækur, tímarit og DVD diska á Amtsbókasafninu heldur verður hægt að fá lánaðan listamann. Það eru danshöfundarnir Ásrún Magnúsdóttir og Paloma Madrid sem verða lánuð út til heimila á Akureyri og nágrenni.
Listamenn til láns á bókasafninu
05/10/2013 @ 12:19
Listamennirnir verða lánaðir út ásamt ákveðnum listaverkum sem þeir munu deila með lánþegunum. Við vinnslu þessara verka hafa þeir nýtt sér sína einstöku listrænu nálgun með það að markmiði að rannsaka og krafsa í staði, líkama og aðstæður hins hversdagslega lífs lántakendanna.
Verkefnið, sem ber heitið Listamaður til láns, er skipulagt af The Festival í samstarfi við Amtsbókasafn Akureyrar og er því listrænt stjórnað af Alexander Roberts. „Við vitum ekki til þess að þetta hafi verið gert annarsstaðar en Alexander fékk þessa frábæru hugmynd sem við náðum að gera að veruleika,“ segir Ásgerður Gunnarsdóttir verkefnastjóri verkefnisins.
„Við gerðum þetta í Reykjavík í vor og það vakti mikla lukku og við erum mjög ánægð með að fá tækifæri til að koma með þetta norður,“ bætir Ásgerður við.
Listaverkin sem hægt er að leigja eru tvö. Annars vegar dansverkið Reykjavík Folk Dance Festival, þar sem Ásrún Magnúsdóttir dansari og danstilraunamaður mun kenna lánþegum nýjan þjóðdans sem hún samdi í lánsferlinu í Reykjavík og segir nú vera tíma til kominn að færa dansinn til Akureyrar og þróa hann enn frekar með bæjarbúum. Ásrún var tilnefnd til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunnanna, sem Sproti ársins fyrir verkefnið. Hér má sjá umfjöllun um verkefnið í heimildarmynd eftir Vaidu Braziunaite.
Hitt verkið er eftir sænska danshöfundinn Palomu Madrid og heitir Dance For Apartment. Þar skapar hún dansverk inn á heimilum lánþega og verða þeir sjálfir partur af verkinu. „Og spurningin sem stendur eftir er: Hver er dansarinn?“
Langar þig að upplifa danssýningu á þínu eigin heimili? Nú er tækifærið til að fá það lánað frá Amtsbókasafninu!
Verkin fara öll fram inn á heimilum lánþega og ekkert gjald er tekið fyrir lánið en upplagt er að nýta tækifærið og bjóða vinum og ættingjum heim til að njóta verksins.
Listamaður til láns á Akureyri er styrkt af Leikfélagi Akureyrar, Amtsbókasafni Akureyrar, Kulturkontakt Nord og Ungu fólki í Evrópu.
Hægt verður að bóka lánið frá og með mánudeginum 7. október annað hvort í móttöku Amtsbókasafnsins, með því að hringja í síma 693-3385 eða senda tölvupóst á thefestival@thefestival.is.
-SBS

