Skipulagsstjóri hefur lagt fram tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 - 2018 þar sem lögð er til breyting á Aðalskipulagi Akureyrar á tjaldsvæði að Hömrum og útilífsmiðstöð skáta. Þetta er m.a. gert vegna rafmagnslína á svæðinu en í bókun skipulagsnefndar segir að leggja verði áherslu á að helgunarsvæði háspennulínanna sé virt í skipulaginu og það verði skýrt afmarkað. Viðvörunarskilti þurfi að vera um hvar megi tjalda og eins vegna leikja barna. Landsnet fer fram á að nánara skiplag á svæðinu í nágrenni við háspennulínurnar verði unnið í samráði við Landsnet.
Rafmagnslínur við Hamra hafa lengi verið útivistarunnendum og þá ekki síst skátunum þyrnir í augum. Árið 2007 óskaði Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar eftir því við Landsnet og Rafmagnsveitur ríkisins að raflínur þær er lægju yfir útivistarsvæðið í Naustaborgum, tjaldsvæðið að Hömrum og Kjarnaskóg yrðu plægðar í jörð þar sem mikið lýti þótti af þeim auk þess sem trjágróður í Kjarnaskógi var þá þegar farinn að slaga upp í hæð rafmagnslínanna. Er vitað um a.m.k. eitt alvarlegt atvik fyrir nokkrum árum þar sem flugdreki barns festist í rafmagnslínunni. Betur fór þá en á horfðist.




