Akureyringurinn og sviðslistamaðurinn Kristján Ingimarsson hefur verið búsettur í Danmörku síðustu árin þar sem hann hefur gert það gott og nú síðast með verkinu BLAM! sem slegið hefur rækilega í gegn hjá frændum okkar Dönum og víðar um heim en í lok síðasta leikárs hlaut sýningin Reumert verðlaun dómnefndar sem sýning ársins.
„BLAM! er óður til leikgleði og hugrekkis, bræðingur af „Die hard“ og „The Office“, verk án orða þar sem frábærir listamenn (og eldhugar) endasendast um sviðið í stórhættulega fyndnum slagsmálaleik,“ segir í kynningu á verkinu en það verður sýnt í Hofi nú á miðvikudag og fimmtudag, 10. og 11. apríl. nk.
Aðeins þessar tvær sýningar verða á Akureyri en verkið hefur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu síðustu vikuna og hlotið lofsamlega dóma.
Verkið fjallar um þrjá kúgaða skrifstofumenn sem sólunda lífi sínu á sorglegustu skrifstofu veraldar undir vökulu auga siðblinds yfirmanns. Í hvert sinn sem hann lítur undan, nýta þeir tækifærið til að „blamma“: Að endurgera uppáhalds senurnar sínar úr hasarmyndum. Þegar yfirmaðurinn fer að „blamma“ með þeim færist fjör í leikinn og við tekur stórhættuleg saga sem leikin er á ógnarhraða og krefst ofurmannlegra átaka.
Kristján Ingimarsson hefur þróað sitt eigið líkamstungumál sem samanstendur af látbragðsleik, gamanleik, fimleikum, trúðleik, dansi og leiklist – og því þvælist ekkert hefðbundið tungumál fyrir áhorfendum á sýningum Kristjáns. Tónlistin er áberandi og húmorinn er aldrei langt undan.
