Suðupottur tækifæranna

Suðupottur tækifæranna

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir

Á Norður- og Austurlandi eru sennilega hvað flest tækifæri fyrir hendi þegar kemur að fjölbreyttum atvinnumöguleikum. Okkur hefur tekist vel upp með sumt en annað bíður þess að fá athygli eða umhverfi til þess að ná fram og dafna. Það sem helst hefur hamlað frumkvöðlum eða starfandi fyrirtækjum í að sækja fram er flókið regluverk, háir skattar og álögur.

Íslensk þjóð er framtaksöm, hugmyndarík og vel menntuð. Þennan auð þarf að virkja með öllum tiltækum ráðum og tryggja að menntakerfið vinni í nánu samstarfi við atvinnulífið þannig að þau tækifæri sem þar liggja séu nýtt til fullnustu.

Nauðsynlegt er að efla verk- og tæknimenntun í takt við þarfir atvinnulífsins auk þess sem efla þarf samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana um þróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins.

Huga þarf að vaxtagreinum í atvinnulífinu sem felast í frekari þróun á sviði skapandi greina, s.s hönnunar, þekkingariðnaðar, hugvits, listhandverks, kvikmyndaiðnaðar, menningar og lista. Þessar atvinnugreinar eru til þess fallnar að auka fjölbreytni atvinnulífsins, stuðla að nýsköpun og auka gjaldeyristekjur með verðmætum vörum, þekkingu og þjónustu til útflutnings.

Nýta þarf tækifærin sem felast í áframvinnslu þeirra hráefna sem unnin eru á svæðinu og ber þar helst að nefna ál og fisk.

Til þess að hægt sé að nýta þau ótalmörgu tækifæri sem fyrirfinnast í kjördæminu þarf að ríkja sátt um þá grunnatvinnuvegi sem skila hvað mestum verðmætum til þjóðarbúsins. Þannig verður að tryggja stöðugleika sjávarútvegsins til lengri tíma og eyða þeirri óvissu sem skapast hefur um hann með álagningu óraunhæfra gjalda.

Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á að veita ferðaþjónustunni þann stuðning og bakland sem hún þarf til að eflast og dafna og verða einn af máttarstólpum atvinnusköpunar og gjaldeyrisöflunar fyrir land og þjóð. Tryggja þarf að þróun í ferðaþjónustu verði með þeim hætti að ferðamenn heimsæki allt landið, allt árið. Áhersla skal lögð á að þrengja ekki að ferðaþjónustu með íþyngjandi regluverki og skattheimtu.

Útvista þarf verkefnum ríkisins til Norðausturkjördæmis. Má í því sambandi nefna Vatnajökulsþjóðgarð og veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunnar. Heimamenn er mun betur í stakk búnir til að sinna þessum málaflokkum, enda sérþekkingin til staðar. Norðausturlandi tilheyra gríðarlegar auðlindir, s.s orkuauðlindir, gjöfug fiskimið og hugsanlegar olíuauðlindir. Mörg atvinnutækifæri eru í tengslum við siglingar á norðurslóðir og þjónustu við Drekasvæði.

Á svæðinu verða til miklir fjármagnsflutningar ef horft er til þeirra staðbundnu skatttekna sem til verða og ættu þær í auknum mæli að verða eftir á þeim svæðum þar sem þeirra er aflað. Með því væri hægt að gera raunhæfar tillögur í samgöngu- og byggðamálum sem bætt geta aðstöðumun minni byggða til muna og svæðið allt yrði sterkari valkostur þegar kemur að búsetu, þjónustu og afþreyingu.

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir
Höfundur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.

Leitað að vitnum að árekstri

Síðastliðinn mánudag, 8. apríl, milli kl. 8-11:20 var keyrt á bíl, gráan Benz, á planinu við VMA. Sá sem það gerði lét ekki vita né skildi eftir miða svo ef einhver hefur upplýsingar ... Lesa »

Björn Þorláksson

Vonir undirokaðra manna

Stjórnmál varða alla borgara allra ríkja. „Í stjórmálunum felst tækifæri samfélaga til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum og hrinda hugsjónum sínum í framkvæmd. Við þau eru ... Lesa »

Allt of vinsæll leikskóli!

Vinsældir hjallastefnuleikskólans Hólmasólar hafa slegið öll met og er ásókn svo mikil í skólann vegna óskar foreldra um flutning barna þangað úr öðrum leikskólum að aðeins fjögur ... Lesa »

Sóknarpresturinn á Húsavík hefur beðið Guðný Jónu afsökunar

Sighvatur Karlsson, sóknarprestur á Húsavík, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna máls Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Þar kemur fram að ... Lesa »

Kristján Þór biðst afsökunar á orðum sínum um einelti

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi, Kristján Þór Júlíusson sagði á opnum fundi í síðustu viku að formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, ... Lesa »

VMA-Yggdrasill sýnir Tjaldið eftir Hallgrím Helgason

Yggdrasil – leikfélag VMA – frumsýnir Tjaldið eftir Hallgrím Helgason í salnum á fjórða hæð Rósenborgar (Skólastíg 2) annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30. Leikstjórar eru ... Lesa »

Prestar eiga ekki að vera sáttargjörðaraðilar milli þolenda og gerenda í ofbeldismálum

Solveig Láru Guðmundsdóttur, vígslubiskup á Hólum, hefur verið falið að skoða aðkomu prestsins á Húsavík í máli Guðnýjar Jónu, sem kom fram í Kastljósi í fyrrakvöld. Solveig ... Lesa »

Verslunarskólinn sýnir í Hofi

Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands setur á hverju ári upp glæsilegan söngleik og þetta árið var söngleikurinn V.Í. Will Rock You kynntur til sögunnar. Frumsýning var 7. febrúar sl. í ... Lesa »

Verslunarskóli Íslands sýnir í Hofi

Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands setur á hverju ári upp glæsilegan söngleik og þetta árið var söngleikurinn V.Í. Will Rock You kynntur til sögunnar. Frumsýning var 7. febrúar sl. í ... Lesa »

Lengsta skíðaganga landsins

Buch-Orkugangan er 60 km skíðaganga sem haldin verður á laugardaginn. Gangan hefst við Kröfluvirkjun í Mývatnssveit og lýkur í nágrenni Húsavíkur. Þetta er lengsta skíðaganga landsins ... Lesa »

Jákvæður árangur hjá þolendum kynferðisofbeldis í æsku

Á morgun, miðvikudaginn 10. apríl, mun Sigrún Sigurðardóttir lektor við heilbrigðisvísindasvið HA flytja erindi á málstofu í heilbrigðisvísindum undir yfirskriftinni: Þróun ... Lesa »

Yfirlýsing frá biskupi vegna viðtals við sóknarprest á Húsavík

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar í Kastljósinu í gær sem og viðtals í Fréttablaðinu í dag við sóknarprestinn á Húsavík. ... Lesa »

Hús vikunnar: Hafnarstræti 91-93; KEA-húsið og Hafnarstræti 67; Skjaldborg.

Í síðustu pistlum hef ég tekið fyrir nokkur af húsum Sveinbjarnar Jónssonar (1896-1982) sem kenndur var við Ofnasmiðjuna. Ég ætla að láta staðar numið í þeirri umfjöllun í bili en ... Lesa »

X-Stella í framboði, steiksoði, jafnvel roðráði?

Stella í orlofi er alveg gáttuð á því hvað margir flokkar bjóða nú fram fyrir kosningar og það er því henni full mikil byrði en þó einhvers virði í miðjum firði fullum af orlofi ... Lesa »

Mikil gróska á atvinnu- og nýsköpunarhelgi

Um helgina fór fram Atvinnu-og nýsköpunarhelgi í Háskólanum á Akureyri. Þar kom saman stór hópur af fólki með margvíslegar hugmyndir og vann að þeim alla helgina með aðstoð ... Lesa »

Uppgjör við Icesave-málið

Í dag, þriðjudaginn 9. apríl, mun Pétur Dam Leifsson dósent og kennari í Evrópurétti halda erindi á lögfræðitorgi undir yfirskriftinni: Uppgjör við ICESAVE-málið. Torgið hefst kl. ... Lesa »

Í minningu sjómanna sem fórust fyrir hálfri öld

Fyrir 50 árum fórust ellefu sjómenn í fárviðri við Norðurland, þar af sjö Dalvíkingar í blóma lífsins. Atburðurinn átti sér stað þriðjudaginn 9. apríl 1963, í dymbilviku. Á ... Lesa »

120 ungmenni stíga á stokk á Þjóðleik

Um 120 ungmenni taka þátt í Leiklistarhátíð Þjóðleiks á Norðurlandi sem haldin verður í Rósenborg á Akureyri helgina 13.-14. apríl. Upphafið er markað af skrúðgöngu frá ... Lesa »

Suðupottur tækifæranna

Á Norður- og Austurlandi eru sennilega hvað flest tækifæri fyrir hendi þegar kemur að fjölbreyttum atvinnumöguleikum. Okkur hefur tekist vel upp með sumt en annað bíður þess að fá ... Lesa »

1000 vörubílshlöss af snjó á fótboltavellinum

Veturinn í vetur hefur verið sá snjóþyngsti í Dalvíkurbyggð um árabil. Það byrjaði að snjóa af alvöru í lok október á síðasta ári og síðan hefur snjórinn hlaðist jafnt og ... Lesa »

Fordæmd í kjölfar nauðgunar

Guðný Jóna Kristjánsdóttir fluttist burt frá Húsavík í kjölfar þess að samfélagið í bænum snérist gegn henni eftir að hún kærði jafnaldra sinn og bekkjarbróður fyrir nauðgun. ... Lesa »

Reynsla Finna af þátttöku í byggðastefnu ESB

Riikka-Maria Turkia, sérfræðingur í atvinnu- og efnahagsráðuneyti Finnlands, ræðir um áhrif ESB aðildar á byggðamál í Finnlandi, framlög frá ESB til byggðamála og áhrifin sem ... Lesa »

Blam! sýnt í Hofi í vikunni

Akureyringurinn og sviðslistamaðurinn Kristján Ingimarsson hefur verið búsettur í Danmörku síðustu árin þar sem hann hefur gert það gott og nú síðast með verkinu BLAM! sem slegið ... Lesa »

Hið gullna jafnvægi

Velferðarráðuneytið í samstarfi við Jafnréttisráð og Jafnréttisstofu boðar til fundar um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs á Hótel KEA föstudaginn 12. apríl 2013 klukkan 13:00 ... Lesa »

Nemendur Menntaskólans á Tröllaskaga sýna í USA

Listljósmyndasýning fimm nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga var opnuð í Quixnotic kaffihúsinu í St Paul í Minneapolis, Minnesota sl. laugardag. Graycloud Rios listljósmyndari sem kom og ... Lesa »

Skoða meira