Í dag, þriðjudaginn 9. apríl, mun Pétur Dam Leifsson dósent og kennari í Evrópurétti halda erindi á lögfræðitorgi undir yfirskriftinni: Uppgjör við ICESAVE-málið. Torgið hefst kl. 12.00 í stofu M101 og er öllum opið.
Í erindi sínu mun Pétur Dam fjalla almennt um dóm EFTA-dómstólsins frá 28. janúar sl. í svonefndu ICESAVE máli (mál nr. E-16/11). Pétur er dósent við lagadeild Háskóla Íslands og við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri, en á meðal hans helstu rannsóknar- og kennslusviða eru þjóðaréttur og Evrópuréttur.
Pétur hefur undanfarin misseri m.a. haldið fyrirlestra við lagadeildir ýmissa háskóla í Evrópu og fjallað þar nokkuð um ICESAVE-deiluna. Hefur hann orðið þess áskynja að sýn manna á þetta einstaka deilumál virðist vera afar mismunandi og þá ekki síst m.t.t. þess hvaða bakgrunn þeir hafa og verður því m.a. vikið að því sem nefna mætti ólíka lagahugsun í þessu sambandi.
