Mikil gróska á atvinnu- og nýsköpunarhelgi

Mikil gróska á atvinnu- og nýsköpunarhelgi

Anna Þóra Ísfold

Um helgina fór fram Atvinnu-og nýsköpunarhelgi í Háskólanum á Akureyri. Þar kom saman stór hópur af fólki með margvíslegar hugmyndir og vann að þeim alla helgina með aðstoð áhugasamra þátttakenda og sérfræðinga.

Við lok helgarinnar var svo völdum hugmyndum veittar viðurkenningar.

1. verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina og 400.000 kr. hlaut Anna Þóra Ísfold en hugmynd hennar gengur út á að framleiða sængur úr ull af íslensku forystufé. Anna Þóra hefur unnið að hugmyndinni í þónokkurn tíma og leitar nú að framleiðanda fyrir vöruna. Sængurnar hafa þann eiginleika að vera mjög hlýjar en hleypa raka í gegn svo að nætursvefn verði betri.

2. verðlaun og 250.000 kr. fékk verkefnið North Adventures en það er hugmynd þeirra Sverris Guðmundssonar og Ingólfs Árna Björnssonar, og gengur út á þá nýjung í ferðaþjónustu að bjóða ferðamönnum að keyra sjálfir jeppa um íslenskt landslag í fylgd með leiðsögumanni.

3.verðlaun og 150.000 kr. hlaut hugmynin 2Know. Það er vefsíða og snjallsímaforrit sem býður upp á spurningaleiki með ýmsum hætti sem nýtast við að miðla fróðleik til barna. Það eru þau Björn Gíslason, Herdís Björk Þórðardóttir og Matthías Rögnvaldsson sem standa að baki þessari hugmynd.

Sérstaka viðurkenningu sem athyglisverðasta hugmyndin og verðlaun upp á 50.000 kr. fékk verkefnið Ver um sæng. Það er búnaður sem einfaldar verkið við skipti á sængurverum. Það getur nýst á hótelum, sjúkrastofnunum og einnig hreyfihömluðum. Hugmyndina á Gunnhildur Ingólfsdóttir.

Viðurkenningu fyrir mesta árangurinn yfir helginan og 50.000 kr. verðlaun hlaut verkefnið Gosabretti. Það er verkefni þeirra Birgis Freys Sumarliðasonar og Ólafs Ringsted sem stefna að því að framleiða hjólabretti úr koltrefjaplasti sem gerir þau bæði sterkari og léttari en heðfbundin bretti.

Viðurkenninguna Val fólksins, sem þeir sem viðstaddir voru kynningu á verkefnunum völdu, og 100.000 kr. verðlaun fékk verkefnið Hvað viltu verða? Þar er um að ræða vefsíðu sem aðstoðar ungt fólk við að átta sig betur á hvaða námsleið henti þeim best út frá starfslýsingu, framboði á vinnumarkaði og áhugasviði. Það eru þeir Reynir Dagur Prebensson og Preben Jón Pétursson sem unnu að henni.

Hér má sjá fleiri myndir frá helginni sem teknar voru af starfsmanni Innovit

Leitað að vitnum að árekstri

Síðastliðinn mánudag, 8. apríl, milli kl. 8-11:20 var keyrt á bíl, gráan Benz, á planinu við VMA. Sá sem það gerði lét ekki vita né skildi eftir miða svo ef einhver hefur upplýsingar ... Lesa »

Björn Þorláksson

Vonir undirokaðra manna

Stjórnmál varða alla borgara allra ríkja. „Í stjórmálunum felst tækifæri samfélaga til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum og hrinda hugsjónum sínum í framkvæmd. Við þau eru ... Lesa »

Allt of vinsæll leikskóli!

Vinsældir hjallastefnuleikskólans Hólmasólar hafa slegið öll met og er ásókn svo mikil í skólann vegna óskar foreldra um flutning barna þangað úr öðrum leikskólum að aðeins fjögur ... Lesa »

Sóknarpresturinn á Húsavík hefur beðið Guðný Jónu afsökunar

Sighvatur Karlsson, sóknarprestur á Húsavík, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna máls Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Þar kemur fram að ... Lesa »

Kristján Þór biðst afsökunar á orðum sínum um einelti

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi, Kristján Þór Júlíusson sagði á opnum fundi í síðustu viku að formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, ... Lesa »

VMA-Yggdrasill sýnir Tjaldið eftir Hallgrím Helgason

Yggdrasil – leikfélag VMA – frumsýnir Tjaldið eftir Hallgrím Helgason í salnum á fjórða hæð Rósenborgar (Skólastíg 2) annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30. Leikstjórar eru ... Lesa »

Prestar eiga ekki að vera sáttargjörðaraðilar milli þolenda og gerenda í ofbeldismálum

Solveig Láru Guðmundsdóttur, vígslubiskup á Hólum, hefur verið falið að skoða aðkomu prestsins á Húsavík í máli Guðnýjar Jónu, sem kom fram í Kastljósi í fyrrakvöld. Solveig ... Lesa »

Verslunarskólinn sýnir í Hofi

Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands setur á hverju ári upp glæsilegan söngleik og þetta árið var söngleikurinn V.Í. Will Rock You kynntur til sögunnar. Frumsýning var 7. febrúar sl. í ... Lesa »

Verslunarskóli Íslands sýnir í Hofi

Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands setur á hverju ári upp glæsilegan söngleik og þetta árið var söngleikurinn V.Í. Will Rock You kynntur til sögunnar. Frumsýning var 7. febrúar sl. í ... Lesa »

Lengsta skíðaganga landsins

Buch-Orkugangan er 60 km skíðaganga sem haldin verður á laugardaginn. Gangan hefst við Kröfluvirkjun í Mývatnssveit og lýkur í nágrenni Húsavíkur. Þetta er lengsta skíðaganga landsins ... Lesa »

Jákvæður árangur hjá þolendum kynferðisofbeldis í æsku

Á morgun, miðvikudaginn 10. apríl, mun Sigrún Sigurðardóttir lektor við heilbrigðisvísindasvið HA flytja erindi á málstofu í heilbrigðisvísindum undir yfirskriftinni: Þróun ... Lesa »

Yfirlýsing frá biskupi vegna viðtals við sóknarprest á Húsavík

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar í Kastljósinu í gær sem og viðtals í Fréttablaðinu í dag við sóknarprestinn á Húsavík. ... Lesa »

Hús vikunnar: Hafnarstræti 91-93; KEA-húsið og Hafnarstræti 67; Skjaldborg.

Í síðustu pistlum hef ég tekið fyrir nokkur af húsum Sveinbjarnar Jónssonar (1896-1982) sem kenndur var við Ofnasmiðjuna. Ég ætla að láta staðar numið í þeirri umfjöllun í bili en ... Lesa »

X-Stella í framboði, steiksoði, jafnvel roðráði?

Stella í orlofi er alveg gáttuð á því hvað margir flokkar bjóða nú fram fyrir kosningar og það er því henni full mikil byrði en þó einhvers virði í miðjum firði fullum af orlofi ... Lesa »

Mikil gróska á atvinnu- og nýsköpunarhelgi

Um helgina fór fram Atvinnu-og nýsköpunarhelgi í Háskólanum á Akureyri. Þar kom saman stór hópur af fólki með margvíslegar hugmyndir og vann að þeim alla helgina með aðstoð ... Lesa »

Uppgjör við Icesave-málið

Í dag, þriðjudaginn 9. apríl, mun Pétur Dam Leifsson dósent og kennari í Evrópurétti halda erindi á lögfræðitorgi undir yfirskriftinni: Uppgjör við ICESAVE-málið. Torgið hefst kl. ... Lesa »

Í minningu sjómanna sem fórust fyrir hálfri öld

Fyrir 50 árum fórust ellefu sjómenn í fárviðri við Norðurland, þar af sjö Dalvíkingar í blóma lífsins. Atburðurinn átti sér stað þriðjudaginn 9. apríl 1963, í dymbilviku. Á ... Lesa »

120 ungmenni stíga á stokk á Þjóðleik

Um 120 ungmenni taka þátt í Leiklistarhátíð Þjóðleiks á Norðurlandi sem haldin verður í Rósenborg á Akureyri helgina 13.-14. apríl. Upphafið er markað af skrúðgöngu frá ... Lesa »

Suðupottur tækifæranna

Á Norður- og Austurlandi eru sennilega hvað flest tækifæri fyrir hendi þegar kemur að fjölbreyttum atvinnumöguleikum. Okkur hefur tekist vel upp með sumt en annað bíður þess að fá ... Lesa »

1000 vörubílshlöss af snjó á fótboltavellinum

Veturinn í vetur hefur verið sá snjóþyngsti í Dalvíkurbyggð um árabil. Það byrjaði að snjóa af alvöru í lok október á síðasta ári og síðan hefur snjórinn hlaðist jafnt og ... Lesa »

Fordæmd í kjölfar nauðgunar

Guðný Jóna Kristjánsdóttir fluttist burt frá Húsavík í kjölfar þess að samfélagið í bænum snérist gegn henni eftir að hún kærði jafnaldra sinn og bekkjarbróður fyrir nauðgun. ... Lesa »

Reynsla Finna af þátttöku í byggðastefnu ESB

Riikka-Maria Turkia, sérfræðingur í atvinnu- og efnahagsráðuneyti Finnlands, ræðir um áhrif ESB aðildar á byggðamál í Finnlandi, framlög frá ESB til byggðamála og áhrifin sem ... Lesa »

Blam! sýnt í Hofi í vikunni

Akureyringurinn og sviðslistamaðurinn Kristján Ingimarsson hefur verið búsettur í Danmörku síðustu árin þar sem hann hefur gert það gott og nú síðast með verkinu BLAM! sem slegið ... Lesa »

Hið gullna jafnvægi

Velferðarráðuneytið í samstarfi við Jafnréttisráð og Jafnréttisstofu boðar til fundar um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs á Hótel KEA föstudaginn 12. apríl 2013 klukkan 13:00 ... Lesa »

Nemendur Menntaskólans á Tröllaskaga sýna í USA

Listljósmyndasýning fimm nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga var opnuð í Quixnotic kaffihúsinu í St Paul í Minneapolis, Minnesota sl. laugardag. Graycloud Rios listljósmyndari sem kom og ... Lesa »

Skoða meira