Þetta er forsíða Morgunblaðsins miðvikudaginn 17. apríl 1963. Þarna birtast myndir af sjómönnum, flugliðum og farþegum sem týndu lífinu í dæmalausri slysahrinu á fáeinum sólarhringum í dymbilvikunni og á páskadag árið 1963
Fyrir 50 árum fórust ellefu sjómenn í fárviðri við Norðurland, þar af sjö Dalvíkingar í blóma lífsins. Atburðurinn átti sér stað þriðjudaginn 9. apríl 1963, í dymbilviku. Á morgun, þriðjudaginn 9. apríl verður minningarathöfn í Eyjafirði og á Dalvík þar sem bautasteinn til minningar um sjómennina verður afhjúpaður. Dalvíkingarnir sjö voru af vélbátunum Hafþóri og Val en einnig fórust menn af bátnum Magna frá Þórshöfn.
Kl. 13 á þriðjudag munu trébátar sigla frá Dalvík og Húsavík áleiðis að mynni Eyjafjarðar þar sem blómakransi verður varpað í hafið í minningu sjómannana. Þeir sem hafa áhuga á því að slást í förina eru velkomnir um borð svo lengi sem nægt skipsrúm er. Séra Magnús G. Gunnarsson, sóknarprestur á Dalvík mun þar flytja minningarorð. Gert er ráð fyrir að komið verði til baka til Dalvíkur um kl. 15:30
Kl. 16 verður bautasteinninn afhjúpaður við athöfn við Dalvíkurhöfn. Steinninn var sérvalinn þar í hafnargarðinum haustið 2012 og fluttur suður í Kópavog til listrænnar meðhöndlunar og merkingar. Jón Adolf Steinólfsson, tréskurðarmeistari og listamaður, klappaði lágmynd í steininn. Svanfríður Jónasdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar flytur ávarp.
Kl. 17 verður minningarathöfn í Dalvíkurkirkju þar sem Karlakór Dalvíkur og kór Dalvíkurkirkju syngja. Haukur Sigvaldason og séra Magnús. G. Gunnarsson flytja ávörp.
Morgunblaðið, 10. apríl 1963 (timarit.is)
Morgunblaðið, 17. apríl 1963 (timarit.is)
