Í síðustu pistlum hef ég tekið fyrir nokkur af húsum Sveinbjarnar Jónssonar (1896-1982) sem kenndur var við Ofnasmiðjuna. Ég ætla að láta staðar numið í þeirri umfjöllun í bili en hef ég þó ekki tekið nema örlítin hluta af húsunum sem hann annaðhvort teiknaði eða byggði hér á Akureyri og nágrenni árin 1920-35. En fyrir þá sem vilja kynna sér húsin hans og störf nánar bendi ég á ævisöguna hans, Byggingameistari í stein og stál eftir þá Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson, gefin út af Fjölva 1996. Þar er farið ítarlega yfir starfsferil hans sem spannaði marga áratugi og kom hann þar mjög víða við. Auk þess eru birtar í bókinni margar af teiknungum hans og upptalning á húsunum sem hann byggði og teiknaði.
En hér eru tvö valinkunn stórhýsi á níræðisaldri, hús eftir Sveinbjörn, sem ég leyfi mér að fullyrða að allir Akureyringar kannast við enda standa þau á fjölförnum stöðum í hjarta bæjarins og annað þeirra um áratugaskeið höfuðstöðvar eins helsta máttarstólpa bæjarfélagsins.
Þetta hús ætti að vera öllum sem einhvern tíma hafa komið til Akureyrar kunnuglegt – og að sjálfsögðu þekkja það allir Akureyringar og nærsveitarmenn! KEA húsið stendur á mótum Kaupangsstrætis og Hafnarstrætis og framhliðin snýr að fyrrnefndu götunni. Þetta er líklega eitt þekktasta götuhorn Akureyrar og vilja margir meina að þetta sé fallegasta götuhorn landsins.
Húsið var reist árið 1930 eftir teikningum Sveinbjarnar fyrir Kaupfélag Eyfirðinga, KEA og hafði félagið þar sínar höfuðstöðvar í 76 ár, en það fluttist alfarið úr húsinu 2006. Húsið var eitt stærsta og veglegasta hús bæjarins á þeim tíma. Steinsteypt, þrjár hæðir og ris, grunnflötur L-laga og myndar mikið port á bakvið. Í kringum glugga og á þaki er steypuskraut, bogadregnir listar og ýmislegt kögur. Þá eru gólf milli hæða öll steypt en það þekktist aðeins í fáum tilvikum á þeim tíma, þá helst í stórum, opinberum byggingum.
Lengst af voru hinar ýmsu skrifstofur Kaupfélagsins á efri hæðum og stórverslun Kaupfélagsins, gekk síðustu árin undir nafninu Vöruhús KEA, á þeirri neðstu. KEA hætti þarna verslunarrekstri 1996 og fluttist verslunin Bókval í rými Vöruhússins og enn er starfandi þar bókabúð undir merkjum Eymundssonar auk kaffihúss Te og Kaffi.
Árið 2006 fluttist KEA úr húsinu og tók á sama tíma upp nýtt merki sem leysti af tígulinn fræga og var hann í kjölfarið fjarlægður af húsinu. Einhverjum þóttu brotthvarf tígulsins af húsinu hin mesta hneisa, enda KEA nátengt sögu Akureyrar á 20.öldinni og löng hefð fyrir Kaupfélagsmerkinu á húsinu enda götuhornið kallað Kaupfélagshornið. Meðfylgjandi mynd er tekin nokkrum mánuðum eftir að tígullinn fór en rúðupóstar neðstu hæðar halda merkjum KEA á lofti. Þar sem myndin er sex ára gömul, tekin í febrúar 2007, má geta þess að enn eru KEA stafirnir í gluggapóstunum.
Hafnarstræti 67, einnig kallað Skjaldborg, var reist 1926 sem samkomuhús fyrir Góðtemplarastúkurnar og Ungmennafélag Akureyrar. Húsið er tvílyft steinsteypuhús með háu risi og á háum kjallara. Fjórir samliggjandi kvistir eða litlar burstir á risi gefa húsinu nokkurn svip en þeir eru seinni tíma viðbót og voru ekki á teikningum Sveinbjarnar að húsinu.
Ungmennafélagið og Góðtemplarar notuðu húsið nokkra áratugi sem samkomuhús og voru m.a. með kvikmyndasýningar þar. Seinna eignaðist húsið Prentsmiðja Björns Jónssonar og þarna hóf Bókaútgáfan Skjaldborg starfsemi sína og sennilega hefur húsið fengið þetta heiti sitt þá. Árin 1985-90 var húsið allt tekið til gagngerra endurbóta og þá voru m.a. byggðir kvistirnir fjórir á risið og húsið byggt upp sem hótel og þjónar það enn því hlutverki. Fyrst var þarna Hótel Óðal en í húsinu er nú rekið hótel undir hinu fornfræga nafni Hótel Akureyri. Myndin er tekin 6.7.2010.
Arnór Bliki Hallmundsson
Heimildir:
Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson (1996).
Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni 1896-1982. Reykjavík: Fjölvi.
