Stella í orlofi er alveg gáttuð á því hvað margir flokkar bjóða nú fram fyrir kosningar og það er því henni full mikil byrði en þó einhvers virði í miðjum firði fullum af orlofi að mynda sér nú skoðun á einum flokk til að merkja við á kjörseðli í stað þess að merkja við heila fimmtán til tuttugu flokka sem nú bjóða fram. En eins og alkunna er var Stella í framboði fyrir nokkrum árum komin óvart sjálf í framboð. Þar sem hún var að leiðbeina frambjóðendum í að koma nú sem best og á flestan hátt fram við kjósendur sína.
En nú er öngþveitið orðið svo mikið í fjölda framboða að óbirt „Stella í ofboði“ snýst í hringi yfir málefnakynningum talsmanna í framboðum sem allir eiga sjálfsagt skilið að komast á þing.
En það er ótrúlegt á litla eyríkis Íslandi sé kominn slíkur fjöldi að bjóða krafta sína til þingsetu að jafnvel þjóðir með milljónir íbúa myndu ekki hafa slíkan fjölda í framboði og við Íslendingar getum trúlega hreykt okkur af þessu sem enn einu heimsmeti miðað við höfðatölu, en ég frétti að Ítalía hefði svipaðan flokkafjölda, en Ítalir eru nú milljóna þjóð.
En við erum heppin að búa í lýðræðisríki þar sem tjáningarfrelsi er ennþá og ferðamannaiðnaður blómstar sem aldrei fyrr og það í herlausu landi. Þó að það geysi styrjöld milli fátækra og ríkra, en sem betur fer ekki blóðugt stríð ennþá, fólk flytur frekar úr landi. Á skuldugum heimilum á enginn að þurfa að lifa við þá örvæntingu að vera borinn út úr húsi sínu, sama hve slæm skuldastaðan er og miðað við erlenda nýbúa okkar lands þá má búast við Nýbúaflokk og með mínum stuðningi ef þörf krefur og þá verða trúlega fordómar með Stellu veitingamann sem verður jafnvel undir í átökum og endar með höfuð í „steiksoði“. En það vantar í raun allavega einn flokk í viðbót: Flokk lögreglumanna eða neyðarflokk allra nauðsynja „Sjúkraflutningaflokk í mannauðsbestun“.
Þar sem ekki dugir að mala í málþófi á meðan mállausir, heyrnar-, sjón- og hreyfiskertir fylla bekki þegar sjúkrabíll er farinn í útkall. „Neyðarnaust“ gæti það kallast og myndi hafa aðstöðu við Austurvöll í húsi sem áður hýsti Alþingi. En Alþingi með núverðandi þingsköpum flokkaforms mun þurfa að víkja fyrir nýjum og betri veitingamönnum tískulögreglu og helst í einstaklingskjöri frekar en úreltu flokkaformi. Þar sem Stella í „roðráði“ verður þorsk-ráðherra og fer fyrir ráðherra rjóðri átta til tólf einstaklingskjörinna ráðherra sem gerir 63 manna Alþingi óþarft. Sjávarútvegsráðherra, Stella í „óráði“ er úti á sjó með áhöfn sinni að afla verðmæta til útflutnings ásamt fleiri ráðþrota ráðherrum. En heilbrigðisráðherra er kominn í samfélagþjónustu við að finna rúmliggjandi sjúkingum úti á göngum hvíldarstofu við hæfi. Og mennta-, dóms- og kirkjumálaherra er önnum kafinn við að gera afbrotafólki og aðra gerendur virka í nýju og jákvæðu forritunarnámi. 63 manna þings sem verður fellt niður og eftir stendur einungis átta til tólf manna ráðherra stjórnarráð en fagmenn fengnir í þau mál sem ráðherrar roðmála og aðstoðamenn þeirrra ráða ekki við.
Atli Viðar Engilbertsson
Höfundur er listamaður Listar án landamæra 2013
