Fúnkís var nokkuð ráðandi byggingarstíll í steinsteypuhúsum hér á landi eftir 1930-35 og framyfir miðja öldina. Helgamagrastræti 6 er mjög gott dæmi um slíkt hús, en það er byggt 1937 eftir teikningum Þóris Baldvinssonar.
Húsið er tvílyft steinsteypuhús, því sem næst ferningslaga að grunnfleti með horngluggum. Gluggar eru yfirleitt breiðari en á hæðina og póstar einfaldir, í þessum húsum voru krosspóstar og sexrúðugluggar fyrri tíðar víðs fjarri. Einhverntíma heyrði ég að á þessum tíma væri fyrst farið að hugsa um stærð glugga og afstöðu herbergja til sólar og dagsbirtu við byggingu húsa. Hitt er annað mál, að notagildi var algjört lykilatriði við byggingu fúnkíshúsa. Hver einasti fermetri nýttur til fulls og ekkert óþarfa prjál. Helgamagrastræti 6 er eitt margra tveggja hæða fúnkíshúsa sem Þórir Baldvinsson teiknaði og voru reist 1936-37 fyrir starfsmenn KEA. Eru þetta á annan tug líkra húsa sem standa við efri hluta götunnar. Öll standa þessi hús enn, en sumum hefur verið breytt og byggt við eins og gengur og gerist.
Þetta var sannkallað úthverfi því á þessum tíma var Helgamagrastrætið efsta gatan í bænum og í bakgarðinum voru tún og beitilönd. Flest voru þessi hús Þóris skipulögð sem tvíbýli í upphafi með íbúð á hvorri hæð en nú eru mörg hver orðin einbýlishús. Íbúasaga Helgamagrastrætis 6 er mér ókunn en fullvíst að þarna hafa margir átt heima gegn um tíðina.
Húsið er í góðu standi enda vel byggt og líkast til vel við haldið frá upphafi og umhverfi hússins er einnig mjög aðlaðandi, líkt og á við um alla götuna þar sem mikil tré og smekklegar grónar lóðir eru áberandi. Raunar er það svo að mörg húsin við Helgamagrastrætið sjást illa að sumarlagi fyrir trjáskrúði.
Helgamagrastræti er önnur tveggja gatna á Akureyri þar sem er heilsteypt röð lítt breyttra fúnkíshúsa frá 1936-40, en hin er Ægisgata á Oddeyrinni og í næstu viku ætla ég að víkja að henni. Í síðarnefndu götunni eru það einlyft hús með valmaþaki sem eru mest áberandi. Hvort þessar götumyndir eru friðaðar veit ég ekki, en það væri eflaust athugunarvert. Þessi mynd er tekin 21.ágúst 2011.
Arnór Bliki Hallmundsson
PS. Helgamagrastræti 6 er byggt 1937 og er því jafn gamalt bandaríska kántrýsöngvaranum Merle Haggard, en hann er fæddur 6.apríl þ.á. Hann er e.t.v. ekki mjög þekktur hérlendis en hér er eitt gamalt og gott frá honum:






